Frjáls verslun - 01.04.2007, Blaðsíða 70
70 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
S tefnuhugtakið í stjórnun er mikil-vægt. STEFNAN, á ensku „stra-tegy“, er bæði óhjákvæmilegt og við-varandi viðfangsefni hjá eigendum,
stjórnendum og starfsmönnum fyrirtækja.
Stefna er alltaf til staðar í fyrirtæki enda er
starfsemin á stöðugri hreyfingu. Stefna getur
verið góð eða slæm, eða allt þar á milli.
Sérhvert fyrirtæki er hópur af fólki sem
ALLT vinnur að þeim verkefnum sem fyrir-
tækið sinnir. Það er aldrei of oft áréttað að
allir í fyrirtækinu viti um stefnuna. Fyrir-
tækið er meira en fólk, það er jafnframt öll
önnur verðmæti sem það býr yfir. Stefnan
birtist í því sem fyrirtækið ER á hverjum
tíma.
ER OG VILL VERÐA
Stefna til framtíðar lýsir afstöðunni til þess
sem fyrirtæki vill VERA og vill VERÐA,
til bæði skemmri og lengri tíma. Sé litið
til baka má sjá stefnu fyrirtækisins gegnum
það munstur athafna og ákvarðana sem
sýnir hvað fyrirtækið VAR eða VARÐ yfir
tiltekinn tíma. Stefnan, þ.e. hvað fyrirtækið
vill vera og verða, felur í sér tilganginn með
fyrirtækinu, hlutverkið og framtíðarsýn þess,
mörkun á tilvistarrými þess, útfærslu á þjón-
ustunni sem það veitir og leiðbeiningar um
alla framvindu athafna í starfseminni, þar
með talinn árangurinn af starfseminni.
Fyrirtæki, sem skapa sér góða og árangurs-
ríka stefnu, verða rásföst og njóta velgengni,
S T J Ó R N U N
TEXTI: RUNÓLFUR SMÁRI STEINÞÓRSSON
Runólfur Smári Steinþórs-
son prófessor fjallar hér um
stefnuhugtakið í stjórnun,
þ.e. strategíu hvers fyrir-
tækis. Hvernig vill fyrirtækið
vera og hvernig vill það
verða þegar fram í sækir?
Dr. Runólfur Smári Stein-
þórsson, prófessor í stjórn-
un og stefnumótun við
viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands.
Hvert stefnir
fyrirtækið?