Frjáls verslun - 01.04.2007, Side 41
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 41
... TIL RUNÓLFS ÁGÚSTSSONAR,
FRAMKVÆMDASTJÓRA FRAMKVÆMDASVIÐS KEILIS:
Hverjar verða áherslur nýs háskóla á
Keflavíkurflugvelli og hvað má reikna með mörgum
nemendum í byrjun?
Nám á þremur stigum
„Hlutafélagið Keilir er eins konar
rammafyrirtæki utan um menntun
á mismunandi skólasviðum.
Heildarhlutafé er á fjórða hundrað
milljónir og má segja að þrír aðilar
leggi ámóta mikið af mörkum hver
um sig, það er Háskóli Íslands,
nokkur af lykilfyrirtækjum útrás-
arinnar á Íslandi og svo heima-
menn á Suðurnesjum.
Til stendur að bjóða nám á þremur stigum. Fyrsta verkefnið
er frumgreinadeild þar sem fólk sem hefur ekki stúdentspróf
á þess kost að afla sér undirbúnings stefni það á háskóla-
menntun. Í annan stað er fagskóli, svo sem í fluggreinum
ýmiss konar. Þriðja sviðið þar sem við hyggjumst hasla okkur
völl er alþjóðlegt rannsóknartengt háskólanám þar sem settir
verða upp fimm meginklasar, það er á sviði orku- og auðlinda-
nýtingar; öryggis-, alþjóða- og stjórnmála; flugs, samgangna og
þjónustu; íþrótta, heilbrigðis og heilsu; og lista, hönnunar og
afþreyingar.“
… TIL ORRA HLÖÐVERSSONAR,
FRAMKVÆMDASTJÓRA
FRUMHERJA:
Samruni skoðunarfyrirtækjanna Frumherja
og Aðalskoðunar hefur verið ógiltur af
Samkeppniseftirlitinu. Var þessi samruni ekki borin
von þar sem þessi fyrirtæki eru þau einu á skoðunar-
markaðnum?
Undir viðmiðum samkeppnislaga
„Við töldum svo ekki vera. Heildarstærð bifreiðaskoðunarmark-
aðarins á Íslandi er undir viðmiðunarmörkum samkeppnislaga
þar sem kveðið er á um tilkynningu til stjórnvalda í kaupum sem
þessum. Þess vegna var það metið svo af okkar hálfu, að með því
að greina aðra og óskylda starfsemi Frumherja frá bifreiðaskoð-
unum ættu kaupin að geta gengið í gegn jafnvel þótt eignarhald
beggja félaga yrði á sömu hendi. Þessu eru samkeppnisyfirvöld
greinilega ekki sammála. Þau telja að önnur og óskyld starfsemi á
vegum eigenda Frumherja muni hindra samkeppni á bifreiðaskoð-
unarmarkaði.“
… TIL PÁLS Á. JÓNSSONAR,
FRAMKVÆMDASTJÓRA MÍLU HF.:
Míla er nýtt fyrirtæki utan um grunnnet
Símans. Hver er stefna fyrirtækisins og hvert
er bókfært virði þess?
Áttaviti og lögum okkur að þörfum
„Míla mótar stefnu sína í gegnum svokallaðan áttavita.
Áttavitinn er eins og nafnið gefur til kynna sú stefna sem
fyrirtækið hefur tekið. Hann tekur til framtíðarsýnar, mark-
hópa, loforða, gilda, markmiða, þjónustu, persónuleika, nafns og
staðsetningar á markaði. Framtíðarstefna Mílu er grundvölluð á nið-
urstöðum mörkunarvinnunnar, það er að þarfir og óskir viðskiptavina
séu okkar drifkraftur. Framtíðarsýn okkar er: Míla er mikils metinn
viðskiptafélagi í fjarskiptum. Saman skilgreinum við þarfir viðskipta-
vinarins og beitum okkar sérfræðiþekkingu til þess
að veita góða þjónustu og laga okkur að þörfum
viðskiptavina okkar. Míla rekur fjarskiptanet sem
nær um allt land og gerir Mílu kleift að þjóna öllum
með sama hætti. Míla gerir þannig þjónustuaðilum á fjarskiptasviði
mögulegt að ná til viðskiptavina sinna, leigir farsímarekendum leigu-
línur í radíóstöðvar og leigir þeim húsnæði undir búnað úti um land.
Bókfærðar eignir alls eru 19,2 milljarðar króna og bókfært eigið fé
er nær 3,8 milljarðar kr.“