Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Qupperneq 94
180
TÍMARIT MÁLS OC. MENXINGAII
orðin. Nú getur hver okkar skilið, að ekkert verk væri hægt
á þessum tíma að gefa þjóðinni jafn verðmætt og Arf íslend-
inga. Nú getum við fagnað því, að eiga ritstjórn þess i hönd-
um Sigurðar Nordals. Okkur er því ekkert jafn mikið kapps-
mál og að koma þessu verki út jafn glæsilegu og við ráðgerð-
um upphaflega. Við lítuni á útgáfu þess sem hið mikla sögulega
afrek, sem félag okkar er kjörið til að vinna næstu árin í þágu
allrar þjóðarinnar. Frá upphafi lief ég trúað á þessa útgáfu,
cins og ég trúi á sjálfa lieiil íslenzku þjóðarinnar. Mér urðu
einu sinni þau stóru orð á munni, þegar ráðist var á félagið
í tilefni að þessari útgáfu, að við myndum setja himin og jörð
á hræringu til þess að koma út Arfi íslendinga. Álér finnst nú
ekki fjarri þvi, að við höfum orðið að gera það. Við höfum sætt
ósvifnum árásum heima fyrir, og þar á ofan grípur inn í heims-
styrjöld með óvæntustu atburðum. í Svíþjóð jiótti mér í svip
óvænlega horfa. En ég hugsaði sem svo: hvað gagnar að taka
sér stór orð í munn og láta síðan ómerkilega styrjöld kyrrsetja
sig í framandi landi, eða gefast upp við pappírskaup, þótt eitt
land lokist. Og innan stundar funaði upp aftur í brjóstinu trúin
á útgáfu þessa verks og ég vildi ekki eiga að neita því, að það
hafi verið hún, sem bar mig heim. Og við getum fullvissað
ykkur um það, að Arfur íslendinga mun koma út á rétt-
um tíma, þrátt fyrir allt, sem á gengur. Það eru reyndar engin
líkindi til, að pappírinn, sem pantaður var i Svíþjóð og koma
átti í tveimur sendingum, sú fyrri 20. apríl, sú s'einni í septem-
her, muni komast hingað i tæka tíð, en i stað þess hefur hann
verið pantaður frá Ameriku, og er fyrsta sendingin á leiðinni
til landsins. Við s'jáum enga ástæðu til að óttast, að áætlun
okkar um útgáfuna þurfi að raskast, þrátt fyrir hina miklu
dýrtíð. Við gerðum upphaflega ráð fyrir hækkandi pappirsverði
og áætlun okkar stenzt þar enn. En nú er komið að tvennu i
einu, bæði að greiða pappírinn og eins talsvert af ritlaunun-
um. Það er ekki einu sinni heilt ár til stefnu, þangað til byrj-
að verður að prenta a. m. k fyrsta bindið. Undirbúningi af liálfu
ritstjórnarinnar miðar vel áfram. Undirtektir félagsmanna hafa
verið frábærlega góðar. Samt er hér eins og oft vill verða um
framtíðarverk: mönnum finnst nógur tími til stefnu. Allt of
margir félagsmenn hafa dregið að greiða tillög sin, sumir hafa
ef til vill óttast, að útgáfan myndi tefjast. Nú komum við til
ykkar og segjum: útgáfan getur komið á réttum tíma, röðin er
lcomin að ykkur. Vegna pappírs'kaupanna þurfum við að fá greidd-
ar a.m.k. 10 krónur, tillögin fyrir 1939 og 1940, frá hverjum fé-
lagsmanni, helzt ekki síðar en 1. okt. næstk. Jafnframt nrinnum