Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Blaðsíða 21
TÍMARIT MÁLS OG MENN2NGAR
15
flokki hann tilheyrir. Meðan Alþingi situr, er liann frið-
helgur, samkvæmt íslenzkum lögum, ef hann er ekki
staSinn aS glæp. Ef Bretar óska vinsamlegrar samhúS-
ar viS íslendinga, mega þeir ekki leika sér aS því aS
vanhelga elztu og merkustu stofnun þjóSarinnar. Hér
hefur veriS gengiS feti framar en fært er og sæmilegt.
Brezka lieimsveldiS eykur ekki á virSingu sína, ef þaS
skirrist viS aS hæta tafarlaust fyrir þann verknaS.“ VíS-
ar aS hafa mótmæli borizt. Félag íslenzkra ritliöfunda
samþykkti aS taka undir mótmæli Alþingis meS eftir-
farandi greinargerS: „UndirritaSir íslenzkir rithöfund-
ar, meSlimir Félags íslenzkra rithöfunda, vilja liér meS
láta í ljós samúS sína og fyllsta stuSning viS þings-
ályktun, gerSa meS einróma samþykkt liins íslenzka
Alþingis i sameinuSu þingi vegna þeirrar fóttroSslu,
sem útlent hervald hefur framiS á grundvallarhugsjón-
um íslenzks lýSræSis og stjórnskipunarlögum vorum
meS þeirri skerSingu ritfrelsis á íslandi og ofbeldi, sem
fram kemur í banni á íslenzku dagblaSi og liandtök-
um og brottflutningi til fangelsunar í öSru landi á ís-
lenzkum blaSamönnum, án þess þeir hafi veriS ákærS-
ir fyrir neitt, er réttlætt gæti úrskurS um handtöku
samkvæmt íslenzkum lögum.“ Undir samþykktina rit-
uSu nöfn sin Fr. Ásmundsson Brekkan, SigurSur Nor-
dal, Halldór Kiljan Laxness, SigurSur Helgason, Jó-
hannes úr Kötlum, Gunnar M. Magnúss, Tómas GuS-
mundsson, Þórhergur ÞórSarson, Magnús Stefánsson,
Gunnar Benediktsson, Jón Magnússon, Halldór Stefáns-
son, Jakoh Thorarensen, Ólafur Jóh. SigurSsson, Lárus
Sigurhjörnsson, Magnús Ásgeirsson, Theódór FriSriks-
son, IJelgi Pjeturss, GuSmundur Gíslason IJagalín,
Gunnar Gunnarsson, GuSmundur Daníelsson, DavíS
Stefánsson frá Fagraskógi, Jakoh Jóh. Smári, SigurS-
ur Einarsson, Axel Thorsteinsson, Vilhj. Þ. Gíslason,
Helgi Hjörvar. Ennfremur hefur Stúdentafélag Reykja-
víkur samþvkkt stuSning viS mótmæli Alþingis.