Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Blaðsíða 26
20
TÍMAÍUT MÁLS OG MENMNGAR
Umboð allra þingmanna var útrunnið í vor, eftir á-
lcvæðum stjórnarskrár og kosningalaga. Enginn þing-
maður hefur því að mínum dómi siðferðislegan rétt til
að fara með umhoð kjósenda sinna frá 1937, eftir síð-
asta sunnudag i júní næstkomandi.
Ný mál hafa komið fram og krefjasl lausnar. Um
þau hefur þjóðin ekkert sagt. Nýtt, áður algerlega ó-
þekkt ástand, hefur skapazt i fjármálum þjóðarinnar.
Viðhorfið til verzlunarmálanna er gjörbreytt. Dýrtíðin
vex hröðum skrefum, og þarf að taka á þeim málum
öllum. Þjóðernistilfinningin sljóvgast, en hun þyrfti að
skerpast.
Um öll þessi mál og mörg fleiri áttu kjósendurnir að
bugsa með þingmannaefnunum i vor. Til þeirra átli
að taka afstöðu. Sum þeirra þoldu ekki að biða fram
vfir kosningar. Bráðabirgðalausn og ákvarðanir varð
að gera. En um þær átti þjóðin svo að dæma strax og
færa þá málin í þann farveg, er hún vildi bafa þau i,
ef þau voru ekki þegar komin í hann. Og önnur gömul
og ný mál bíða nú lausnar næstu ára — næsta kjör-
timabils —, eins og skattamálin, sem voru aðeins levst
til bráðabirgða i vetur, stjórnarskráin, sem þarf að
breytast, m. a. vegna breyttrar aðstöðu til sambands-
landsins, og margt fleira.
Enginn þingmaður veit nú um vilja kjósenda í þess-
um málum. Enginn þingmaður veit, livaða umboð kjós-
endur vilja gefa þeim, til að fara með þau. Með því að
fresta kosningum var því hrotinn h e l g u r réttur kjós-
enda til að láta skoðun sina í Ijós og hafa áhrif á
gang málanna.
Og með þvi cr engan veginn vist, að þessum málum
verði ráðið til lykta i samræmi við vilja þjóðarinnar.
Þetta var mér aðalatriði málsins. En fleira studdi hér
að. Hin nýju viðhorf, sem skapazt liafa í þjóðlifinu,
hafa mjög aukið á ábvrgðarlevsi manna og stutt að því,
að margur maðurinn virðist nú dansa i kringum gull-