Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Page 84
78 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Sölva Helgason, er ástæða til að ætla, að hann hafi einmitt i auguin almennings verið eins konar samnefnari allra þeirra, sem beinlinis lifa allt sitt líf í sjálfsblekkingu og gera sér lífs-lýgina að eins konar andlegri hlíf, sem þeir í öllum sökum skríða undir og breiða yfir sig. Þegar Davíð Stefánsson lýsir Sölva Helgasyni — Sólon Is- landus, þá er það ekki fyrst og fremst hinum misskikla, ógæfu- sama atgerfis- og listamanni, sem veita her eftirtekt, heldur meist- aranum í lífs-lýginni og sjálfsblekkingunni. Og um leið dregur skáldið upp mynd, í sannleika óhugnanlega mynd úr þjóðlífi og þjóðarvitund íslendinga, og er hún vissulega umhugsunar- verð: Sá Sölvi Helgason — Sólon Islandus, sem hann sýnir okk- ur, er nefnilega fyrst og fremst Islandus. Og spurningin vaknar: Er Sólon Islandus fulltrúi íslendingsins sem einstaklings og þjóðar? Við getum ekki, þó við fegnir vildum, afneitað honum. En að hve miklu leyti lifir hann í okkur og ræður hugsunum okkar og athöfnum? — Ef til vill liggur mikilvægi þessarar löngu sögu einmitt i þvi, að skáldinu tekst að vekja þessa spurningu í huga lesandans á þann hátt, að hann hlýtur að lialda áfram að spyrja, að reyna að komast að sannleikanum i þessu efni. Til þess að ná þessu notar Davíð Stefánsson engin sérstök meðöl. Hann segir ævisögu manns frá bernsku til grafar. Það er allt og sumt. En sagan er vel sögð og yfirleitt rökrétt og vel hyggð. Hann sýnir, hvernig vel greint barn verður að gáfuðum, en lirjózkufullum ungling og loks að hæfileikamanninum, raup- aranum, lygaranum og landshornamanninum, flakkaranum, glæpa- manninum og spekingnum — fyrir að sumu leyti arfgenga galla, en að mestu fyrir misheppnað uppeldi. Fræinu að stórmennsku- hrjálæðinu er sáð strax í ómótaða sál barnsins með óstjórnlegu hóli og eftirlæti. Það upprætist ekki, heldur þróast örar í skugga þrjózku og uppreistarhuga undir heimskulegum og skilningslaus- um illmennsku aga og harðýðgi síðar meir. — Sjálfsblekkingin dafnar eins og eiturjurt í myrkri heimskunnar og rangsleitninn- ar. Lýgina gagnvart sjálfum sér lærir hann að nota fyrst sem eins konar sjálfsvörn og til afsökunar á óknyttum, sem framdir eru mest sem eins konar liefnd fyrir raunverulegt og ímyndað rang- læti. En brátt skipar lýgin öndvegið í allri hugsun, verður nauð- synleg, nokkurs konar annað eðli. Lýgin eykur hans eigið ágæti og mikilleik, jafnframt þvi sem hún minnkar alla aðra hlut- fallslega: Heimskingjana, hundana, þrælana, sem falla ekki fram og tilhiðja heimsfrægð Sólons Islandi, vilja ekki góðfúslega við- urkenna hann, ala önn fyrir honum, jijóna honmn — þegnlega

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.