Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Síða 90

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1941, Síða 90
84 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR íslendinga til aS fá leiðréttan einhvern tittlingaskít, um ísland, sem staðið hafði i hinu fjöllesna bandariska vikuriti Time. Var skýrt frá þvi, hvernig maður hafði gengið undir manns hönd til að koma lítilli leiðréttingu á framfæri í Bandarikjablaði, en ár- angurslaust. Síðast birtu þeir leiðréttingu sina i blöðunum Heims- kringlu og Lögbergi, sem prentuð eru í Winnipeg Man., Can., og lesin af nokkur hundruð öldruðum fslendingum i Manitoba. Þetta samsvarar því, að maður vildi leiðrétta missögn i Reykja- vikurblaði, en fengi hvergi rúm fyrir leiðréttingu sina á öllu íslandi, og tæki seinast það ráð að slá upp leiðréttingunni á grænlenzku á símastaur i Angmagsalik eða Ivigtut (ef þar væri til simastaur). Þessi tregða á að fá birta leiðréttingu á mishermi talar sínu máli um stöðu íslendinga í Vesturheimi. Það er aftur á móti ekki eins erfitt fyrir Vestur-íslendinga að fá orð sín tekin gild hér heima, eins og i Bandarikjunum. Um sama leyti og Þjóðræknisfélagið í Kanada er árangurslaust að basla við að koma smá-leiðréttingu á prent í Ameriku, send- ir það plagg eitt hingað heim, sem er óðar tekið upp á eigin eyk íslenzka ríkisforlagsins til útbýtingar með skjali og skrumi: Saga íslendinga í Vesturheimi eftir Þorstein Þ. Þorsteinsson. Bók þessi, sem ríkisforlag íslands, Menningarsjóður, hefur tek- ið til útbýtingar, og vill, samkvæmt yfirlýsingum fyrirsvars- manna sjóðsins, koma inn á sem flest heimili i landinu, hefur samt það einkennilega markmið að reyna að færa sönnur á, að ísland sé óbyggilegt land mannlegum verum. Ritið er tilraun til að rekja ágrip af öllum slysförum, illærum, pestum, náttúru- sköðum og þvíumlíku, sem orðið hafa á íslandi, síðan land byggð- ist, og er reynt að segja sögu landsins eins og hér hefði aldrei annað gerzt en slys í einhverri mynd. Mikið af bókinni eru smáleturs-uppprentanir á heimildum um alls konar hrakföll, hlaupin uppi á við og dreif i fornum rit- um, bréfum og blöðum, og væri sá hluti bókarinnar ekki ó- fróðlegur, ef hann þjónaði einhverjum skynsamlegum tilgangi. Það, sem höf. leggur til málanna sjálfur, er aftur á móti einhvers konar undarleg mærð, sem erfitt er að henda reiður á eða flokka i nokkurri þekktri grein bókmennta. Af manni, sem tekur að sér fræðslustörf, er höf. einkennilega sneyddur öllu skynbragði á hlutföllum í bók, hann vantar kunnáttu til að vinna úr heimildum og draga ályktanir af þeim, kann livorki að tak- marka efni sitt né skipa því niður og greina milli aðalatriða og hins, sem ekki skiptir máli. Slysfarir, illæri og önnúr hrakföll á íslandi frá landnámstíð, eiga, samkvæmt kcnningu höfundarins, að vera orsök til fólks-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.