Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 19

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 19
ANDLEGT FRELSI 9 blöð um okkur róttæku rithöfundana, var sízt innblásið af meiri ást á andlegu frelsi en ádeilurnar, er menn þykjast hafa lesið í Pravda í Rússlandi. Og ég bið ykkur að gera svo vel og svara þessari spurn- ingu af hreinskilni: Getið þið ímyndað ykkur að sá verkamaður héldi Iengi starfa sín- um, sem gagnrýndi vinnuveitanda sinn á prenti? Það er langt í frá, að í lýðræðisríkinu íslandi geti heitið ritfrelsi. Allir höfundar, sem verða berir að stjórnmálaskoðunum, er fara í bága við pólitískar ástríður hinna ráðandi stétta, hafa þann refsidóm sívof- andi yfir höfði sér að verða sviptir svo og svo miklu af möguleikum sínum til að lifa. Og óttinn við þessar hefndaraðgerðir hefur dregið hæfileika og manndóm úr sumum þeirra. En svona frumstæð ofsóknar- sýki mun reyndar varla eiga sér stað í öðrum lýðræðisríkjum Vestur- Evrópu. í öllum auðvaldslöndum er ritfrelsinu einnig stakkur skorinn eftir efnahag. Flokkar og einstaklingar, er ekki ráða yfir þeim tækjum, sem nauðsynleg eru til að koma blaði eða bók á prent, þeim er gert mjög erfitt fyrir að gera hugmyndir sínar heyrinkunnar og stundum alger- lega útilokaðir frá þeim frelsisgæðum. En hvernig er þá ritfrelsinu háttað í Rússlandi? I stjórnarskrá Sovétlýðveldanna stendur það ákvæði eins og í stjórn- arskrá okkar, að prentfrelsi skuli ríkja þar í landi. Prentfrelsið þar eystra mun þó svipuðum takmörkunum háð sem hér á landi um hneykslanlegan munnsöfnuð. En þar að auki varðar það við lög — og takið vel eftir því — að hafa í frammi á prenti áróður fyrir stríði, hefndarverkum, arðráni og kynþáttahatri. Það er einnig illa séð að vinna opinberlega gegn hinum lífrænu kenningum kommúnismans, sak- ir þess að þær eru hin fræðilega undirstaða sósíalistiska skipulagsins og grundvöllur að allri þróun þjóðfélagsins. Við leggjum refsingu við áróðri fyrir manndrápum, blóðhefndum, þrælahaldi og ræningja- mennsku, af því að við teljum slíkar athafnir háskalegar frelsi fjöldans og jafnvægi þjóðfélagsins. En hinsvegar er ritfrelsið að tvennu leyti rýmra í Sovétlýðveldunum en hér á landi. Hér var sá menningarháski í lög leiddur fyrir nokkrum árum, að það varðar sektum eða fangelsi að gagnrýna á prenti menn í opinberum stöðum, meira að segja þótt þeir væru sannir að sök.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.