Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 77
OPIÐ BRÉF TIL RITHÖFUNDA 67 Rómverjar hinir fornu héldu því fram að menntagyðjurnar þegðu meðan vopnin töluðu. I dag eiga menntagyðjurnar að upphefja raust sína, þær eiga að tala til þess að vopnin geti það ekki. Ég sný mér til þeirra rithöfunda á Vesturlöndum sem líta öðrum augum á lífið en vér, til þeirra af þeim sem oft finna til og hugsa öðruvísi en vér. Ég sný mér ekki til fylgjenda einnar og sömu hugsjónar, heldur til allra heiðarlegra rit- höfunda á Vesturlöndum. Ég mælist ekki til þess að þeir aðhyllist sjónarmið mín í félagslegum, pólitískum eða fagurfræðilegum efnum. Ég mælist ekki til þess að þeir verji einn stjórnmálaflokk gegn öðrum flokkum, eða eitt ríki gegn öðru. Ég mælist ekki til þess að þeir fordæmi einhverja stjórn vegna stefnu hennar í innan- ríkismálum. Ég mælist til alls annars og fullkomlega aðgengilegs atriðis: ég mælist til þess að þeir taki til máls gegn kjarnorkuvopninu, gegn sprengjum og ofursprengjum sem ógna öllum mönnum; ég mælist til þess að þeir ljái fylgi sitt þeirri kröfu sem sett var fram af verjendum friðarins um skilyrðislaust bann við kjarnorkuvopninu og um stofnun eftirlits með framkvæmd þessa banns; ég mælist til þess að þeir fordæmi þá ríkisstjórn sem dirfist að verða fyrst til að varpa kjarnorkusprengju á íbúa hvaða lands sem er. Ávarpið sem samþykkt var á þriðju ráðstefnu fastanefndar verjenda friðarins felur hvorki í sér dulargervi né herbrögð né hlutdrægni. „Leyndarmálið" sem tengt er framleiðslu kjarnorkuvopnsins er ekki lengur einokuð eign neins eins ríkis. Með kröfunni um bann við kjarnorkuvopninu krefjumst vér banns við því í öllum ríkjum þar sem þetta vopn er framleitt eða hægt er að framleiða það. Vér hvetjum engan til að fordæma stjórn þessa ríkis eða hins, en vér hvetjum menn til að for- dæma þá ríkisstjórn sem dirfist að verða fyrst til að beita vopni til múgeyðingar á mannslífum. Þetta er ekki dómur, heldur viðvörun. Eftir að vér höfðum skrifað undir þetta ávarp höfum vér snúið okkur til allra góðviljaðra manna. Ég hygg að sá sem tekur til máls gegn kröfu vorri um bann við kjarnorkuvopninu komi með því upp um glæpsamlegar fyrirætlanir sínar. Ég hygg að sá sem vill ekki lýsa því yfir að þeir menn sem dirfðust að beita þessu vopni væru glæpamenn, komi með því upp um mannhaturstilgang sinn. Ég mælist til þess að þér, rithöfundar á Vesturlöndum, Ijáið fylgi ávarpi voru sem er eingöngu ávöxtur þeirrar umhyggju er vér berum í brjósti fyrir því að verja húmanismann og menninguna. Ég hef beinlínis í liuga ákveðna vestræna rithöfunda sem geta ekki verið sam- þykkir fyrirætlunum um múgeyðingu mannslífa, en hafa ekki ennþá, að því er ég bezt veit, risið til andstöðu gegn kjarnorkuvopninu. Ég vil leyfa mér að ávarpa hvern einstakan þeirra og ég vona að það megi verða til þess að skýra nátlar meginefni ávarps míns. [Síðan snýr Ehrenburg sér beint til eftirfarandi rithöfunda: Ernest He- mingway, Roger Martin du Gard, J. B. Priestley, Erskine Caldwell, André Chamson, John Steinbeck og Alberto Moravia. Hér á eftir eru tekin tvö dæmi um þessi ávörp.]
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.