Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Side 94

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Side 94
84 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR og dýra orðið fyrir áhrif umhverfisins. Rétt er að taka fram að Darwin áleit einnig að áunnir eiginleikar væru erfanlegir. 2) Arfgengi sé ekki eingöngu bundið við frumukjarnann eða litn- ingana heldur hafi hver ögn líkamans sitt arfgengi. 3) Að mögulegt sé að breyta arfgengi jurta og dýra í ákveðnar áttir með vissum breytingum á lífsskilyrðum og umhverfi. 011 þessi atriði telur Lýsenkó sönnuð með tilraunum, sínum eigin og margra annarra. Ymislegt fleira mætti telja upp til viðbótar við þessi þrjú höfuðatriði, sem nú voru talin. Því er t. d. haldið fram að við kynblöndun jurta og dýra erfist eiginleikar móðurinnar yfirleitt sterkar en eiginleikar föðurins. Einnig mætti bæta því við að Lýsenkó telur sig hafa sýnt að samkeppni um lífsmöguleika milli einstaklinga sömu tegundar eigi sér ekki stað, a. m. k. ekki meðal jurta. Einnig er rétt að taka fram að hér er ekki um neitt endanlegt fastskorðað kerfi að ræða, heldur grundvöll til frekari rannsókna á eðli hinnar lifandi náttúru og hvernig hægt sé að hafa stjórn á þróun hennar. Þeir vísindamenn innan Ráðstjórnarríkjanna sem oftast er vitnað til um þessi mál og taldir eru hafa lagt grundvöllinn að hinni nýju líffræði, hver í sinni grein, eru þessir helztir: I almennri líffræði og lífeðlisfræði Timirjasej og Setsjenof, í jarðvegsfræði W/ilIiams, í hús- dýrarækt Ivanof, og í jurtalíffræði og jurtakynbótum Mitsjúrín og Lýsenkó. III Þess ber að gæta að Lýsenkó á að jafnaði við dálítið annað með arfgengi en klassísku erfðafræðingarnir. Ef til vill er réttara að segja að hann lítur öðruvísi á fyrirbæri hinnar lifandi náttúru. Einkum leggur hann meiri áherzlu á áhrif umhverfisins. Lífverurnar, umhverfi þeirra og lífsskilyrði, beri allt að skoða í samhengi, sem eina heild. Klassísku erfðafræðingarnir eru hinsvegar vanir að rannsaka ein- angruð fyrirbæri og hafa fundið vissar reglur sem gilda um arfgengi einstakra eiginleika hjá sumum lífverum við ákveðin skilyrði, eins og t. d. hin svokölluðu mendelslögmál, sem eru fjarri því að vera algild. Skilgreining Lýsenkós á arfgengi eins og það mál er skýrt í bók hans „Heridity and its Variability“ frá 1943 er nánast sem hér segir: „Arfgengi er sá hœfileiki li.fandi vera að krefjast ákveðinna líjsskil-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.