Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 99
LÍFFRÆÐIKENNINGAR í RÁÐSTJÓRNARRÍKJUNUM
89
V
Onnur aðalsönnun Lýsenkós fyrir því að áunnir eiginleikar geti
gengið að erfðum og að hægt sé að breyta arfgenginu í vissar áttir
eru tilraunir hans með svokallaða vorun jurta og mjög athyglisverð-
ar stökkbreytingar, þ. e. myndun nýrra tegunda, sem fram hafa komið
við þær tilraunir.
Eins ög kunnugt er hefur verið sýnt fram á það með fjölda tilrauna
á seinni árum að stökkbreytingar geta átt sér stað hjá jurtum, einkum
fyrir áhrif kemískra efna, ljósgeisla, röntgengeisla o. fl. Breytingarnar
sem verða af þessum orsökum eru yfirleitt taldar óvissar þannig að
ekki er hægt að segja fyrir um þær, og afbrigðin sem myndast eru
venjulega skaðleg eða óhæf til að þróast við þau skilyrði sem fyrir
hendi eru. Þó hefur á allra-síðustu tímum einnig heyrzt talað um svo-
kallaðar jákvæðar stökkbreytingar. Sænski erfðafræðingurinn Gustafs-
son heldur því t. d. fram (1948) að stökkbreytingar séu síður en svo
háðar tilviljunum og sé hægt að hafa stjórn á þeim með því að breyta
umhverfi frumanna.
Lýsenkó neitar því ekki að stökkbreytingar gerist fyrir áhrif geisl-
unar og kemískra efna, en telur að slíkar aðferðir séu of grófgerðar
truflanir á lífsstörfum jurtanna til þess að hægt sé að fá fram hentugar
eða æskilegar breytingar með þeim.
Eins og áður hefur verið tekið fram telur Lýsenkó sannað að unnt
sé að fá fram arfgengar breytingar hjá jurtum fyrir áhrif lífsskilyrða
og umhverfis á vissum stigum á þróunarbraut einslaklinganna.
I því sambandi hefur hin svonefnda vorun mikla þýðingu. Vorunin
er mjög snjöll aðferð til að stytta vaxtartíma jurta og fá þær til að
blómgast og bera fræ fyrr en ella. Lýsenkó hefur fyrstur manna notað
þessa aðferð í hagnýtum tilgangi og einnig sett fram sérstaka kenn-
ingu um vöxt og þroska jurta til skýringar á þessu fyrirbæri. Kenning
þessi, sem á ensku kallast „theory of phasic development“ er nú viður-
kennd af líffræðingum um allan heim. Aðalatriði hennar eru þessi:
Þróun jurta gerist í aðgreindum stigum eða þroskaskeiðum og getur
nýtt þroskaskeið ekki hafizt fyrr en hinum fyrri er lokið. Mismunandi
þroskaskeið þarfnast ólíkra ytri skilyrða sem verða að vera uppfvllt í
réttri röð til þess að jurtin komist þróunarferil sinn á enda.