Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Blaðsíða 153
UMSAGNIR UM BÆKUR
143
Stefán Jónsson:
Margt getur skemmtilegt
skeð.
Utgef.: Isafoldarprentsmiðja.
Reykjavík 1949.
Engir eru varnarlausari gegn lestrarefni
því sem þeim er fengið í hendur en böm
og unglingar. Ausið er á hinn árlega
markað kynstrum af bókum handa
börnum í trausti þess að þau séu alltaf
öruggir kaupendur, einn árgangur taki
við af öðrum. Varla er spurt að gæðum
þessarar framleiðslu, enda er hún mis-
jöfn eftir því. En er að réttu lagi ástæða
til að vanda eins til nokkurrar bókar og
þeirrar sem ætluð er börnum? Er ekki
einmitt mest í húfi þar að bók gegni
hlutverki sínu, að um leið og hún er til
skemmtunar sé hún einnig til mennt-
unar, frjóvgi hugmyndalíf barnsins og
veki skilning þess á sjálfu sér og um-
hverfinu?
Fullorðnum virðist einkar gjarnt er
þeir skilja við bamæskuna að skella
hurðum í Iás á eftir sér og hugsa um
hana upp frá því sem óskylda veröld og
'taka upp tæpitungu í hvert sinn sem
þeir mæla við börn. Sú stefna var fyrir
nokkrum áratugum tekin upp að gera
•svo einnig í skrifum fyrir böm, líta á
heim þeirra sem gagnólíkan samfélagi
hinna fullorðnu og gera sér upp ein-
feldnislega hugsun í viðræðum við börn
á prenti og tilgert málfar. Ofboðslegra
er þó hið algera hirðuleysi um efni og
efnismeðferð, ekki sízt í þýðingum, eða
sú tilhneiging öllu fremur að hafa barna-
bækur sem mesta þynnku, með einskis-
nýtum vaðli eða í reyfarastíl með rugl-
ingslegum hugmyndum, siðspillandi
•væmni og sem allra fjarst því að glæða
skilning og hugsun, jafnvel eins og til
þess gerðar að dylja fyrir börnum þann
heim sem þau og við lifum í eða sljóvga
dómgreind þeirra á honum.
Fjarri er því reyndar að allir sem við
barnabækur fást eigi hér sömu sök.
Ymsir kennarar og vinir barna hafa
reynt að halda uppi annarri stefnu. Sig-
urbjörn Sveinsson hafði einstakan hæfi-
leika til að skrifa af vekjandi hug-
kvæmni fyrir böm, jafnframt því að
stíll hans og mál ber snilldar einkenni.
Sigurður Thorlacíus skólastjóri hafði
mikinn hug á að bæta í hverju einu að-
stöðu bama og unglinga. Hin lifandi
menningarþrá hans snerist ekki sízt að
því að vilja stofna til vandaðri útgáfu
barnabóka, og færði hann oft í tal að
Mál og menning kæmi upp sérdeild,
bókmenntafélagi handa börnum og ung-
lingum með ákveðnu árstillagi, þar sem
úrvalsbækur frumsamdar og þýddar
væru gefnar út, og myndi hugmynd
þessi vera komin í framkvæmd, ef hans
hefði notið lengur við. Sigurður tók sér
sjálfur tíma bæði til að fmmsemja og
þýða bækur handa ungum lesendum
þar sem hann setti hæst menningargildi
og uppeldissjónarmið.
Einn af þeirn kennurum og rithöf-
undum sem nú halda bezt á loft þess-
ari stefnu er Stefán Jónsson. Hann fór
af stað sem smásagnahöfundur en hefur
upp á síðkastið snúið sér eingöngu
að því að semja skáldsögur við hæfi
barna og unglinga. Með Sögu Hjalta
litla náði hann mikilli og verðskuldaðri
hylli lesenda. Hann heldur áfram á
sömu braut og hefur gefið út nýja skáld-
sögu sem hann nefnir Margt getur
skemmtilegt skeð.
Sögur Stefáns bera augsýnilega með
sér að hann hefur þá stefnu að þær
eigi ekki síður að vera til menntunar