Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Qupperneq 164
154
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
hefur orðið snortinn af á sjálfum sögu-
staðnum.
Kaflinn Frá Landvamartímabilinu er
lengstur og vekur lesandann mest til
umhugsunar. Á þessum 76 síðum er
samankominn geysimikill og aðgengi-
legur fróðleikur um þennan athafna-
ríka þátt í frelsisbaráttu íslendinga,
sem eftir ýms hliðarspor náðu því tak-
marki að skilja við yfirráðaþjóðina og
stofna sjálfstætt lýðveldi.
Þegar maður les frásögnina um þessa
baráttu, sem hefst með Landvamar-
mönnurn sem „einir háðu harða bar-
áttu“ fyrst, en bættist svo smátt og
smátt liðsauki, unz þeir unnu hinn
glæsilega kosningasigur 1908, þá verð-
ur manni hugsað til þess hvernig sag-
an endurtekur sig.
Landvarnarflokkurinn er í fyrstu lít-
ill og fyrirlitinn, en með trúnni á mál-
stað þjóðarinnar og rökum glögg-
skyggnra manna eflist hann og tekst að
fá til fylgis við sig aðra flokka og ó-
flokksbundna menn, þar til mál hans
hefst fram.
Á hvað minnir þetta af þeim hlutum
sem nú em að gerast? Afsal landsrétt-
inda hefur aftur farið fram. Ný mót-
mælaalda gegn því er risin, ný barátta
hafin til að endurheimta þau. Stjóm-
málaflokkur sem hefur fyrirlitningu
alls borgaralegs afturhalds, Sósíalista-
flokkurinn, tók forustuna í þessari bar-
áttu, honum varð þegar mikið ágengt,
hindraði 99 ára samninginn, þótt hon-
um tækist ekki — frekar en Landvörn
— að fyrirbyggja „gönuskeið Alþingis."
Hann hefur þegar unnið marga til fylg-
is við sig í þessu nýja landvamarmáli
(Þjóðvörn) og þarf ekki að efa að
augu þjóðarinnar uppljúkist smátt og
smátt enn sem þá fyrir nauðsyninni að
standa sameinuð um endurheimtingu
þeirra landsréttinda sem af hendi voru
látin við vöggu hins unga íslenzka lýð-
veldis. Hd. St.
Hjálmctr Jónsson frá Bólu,
Ritsafn I—V.
Finnur Sigmundsson bjó til
prentunar. Isafoldarprentsmiðja
Rvík 1949.
I þessum fimm bindum eru gefin út
öll rit Bólu-Hjálmars sem varðveitt eru
svo að kunnugt sé. Enn er ókomið sjötta
bindi útgáfunnar með ævisögu skálds-
ins og greinargerð fyrir handritum og
eldri útgáfum. í tveimur fyrstu bind-
unum eru ljóðmæli, næstu tveimur rím-
ur og í 5. bindi sagnaþættir og sendi-
bréf.
Allur obbinn af ritum þessum hefur
að vísu verið prentaður áður, en að
Ijóðmælunum undan skildum hefur það
verið á sundrungu og misjafnlega frá
útgáfunum gengið. Auk þess eru allar
eldri útgáfur helztu rita Bólu-Hjálm-
ars löngu uppseldar, og því ekki vonum
fyrr að ný útgáfa birtist. Finnur lands-
bókavörður Sigmundsson hefur unnið
hið mesta þatfaverk með því að leita
uppi allt sem að gagni mátti koma af
handritum Bólu-Hjálmars, enda hefur
sitthvað nýtt komið í leitirnar, sumt
áður óprentað, sumt í betri handritum
en áður voru kunn. Þó að segja megi
að þessar nýjungar bæti ekki miklu
við þá mynd sem fengizt hefur af
Hjálmari í þeim ritum hans sem áður
voru birt, þá er nauðsynlegt að einu
sinni sé hreinsað til svo að öll kurl
komi til grafar, þegar um svo merkileg-
an höfund er að ræða.