Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Page 15
GUNNAR BENEDIKTSSON 221 verið rödd hrópandans í eyðimörkinni, því að ég efast um, að nú geti ástsælli kennimann á íslandi. Sem rithöfundur hefur Gunnar Benediktsson verið fjöllyndur eins og sagt var um Snorra Sturluson. Hann hefur rithöfundarferil sinn sem sagnaskáld, fyrst í stað hálfrómantískt, en síðar raunsætt í meira lagi. Skáldsagan Anna Sighvatsdóttir, sem út kom 1929, er sárnöpur ádeila á ríkjandi þjóðfélag, en með þeirri bók mun Gunnar hafa komizt að raun um, að söguformið var honum ekki hentugt til þess að hafa áhrif á fólkið og kenna því að þekkja umhverfi sitt og mannlífið. Hann hverfur því að miklu leyti frá skáldsagnagerð um leið og hann kveður prestskapinn, en snýr sér að samningu ævisagna og ritgerða um sam- tíðarfyrirbæri. Hann kveður þó ekki fagurfræðina að fullu, því að eftir 1940 hefur hann sent frá sér bæði skáldsögu og leikrit. Sem ævisagna- höfundur hefur hann ekki valið sér smá viðfangsefni, söguhetjur hans eru Jesús Kristur og Jósef Stalin. Ýmsir höfðu orðið til þess að rita ævisögur þessara manna úti í hinum mikla heimi á undan Gunnari Benediktssyni, en hann sættir sig ekki við að þýða neitt af þeim verk- um á þjóðtungu vora. Gunnar lítur aldrei hlutina gegnum annarra gler, heldur verður hann að skoða þá eigin sjónum. I bókinni um Stalín segir hann: „íslendingum verður það ekki nóg að fá æviatriði hans sögð í íslenzkum orðum, en séð erlendum augum og metin frá erlendu sjónarmiði. Það þarf að virða hann fyrir sér undir áhrifum íslenzkra viðhorfa og innan íslenzkra sjónbauga.“ Þetta er hið sígilda viðhorf öndvegismanna íslenzkrar menningar. Við höfum verið þjóð með sterk- um sérkennum, af því að ágætustu menningarfrömuðir vorir hafa sam- þýtt erlend menningarfyrirbæri íslenzkum aðstæðum. Það er ekki fyrr en á síðustu áratugum, að íslenzk yfirstétt er orðin svo rótslitin, að hún metur ekki framar vandamálin frá íslenzkum sjónarhóli. Viðhorf Gunnars, þegar hann ritar um bóndann í Kreml, þennan mikla oddvita sveitar sinnar, er einn af sterkustu þáttunum í starfi hans sem rithöfundar. í ræðum sínum og ritgerðum er hann að kenna oss að þekkja samtíð vora og skýra fyrir oss eðli hennar frá íslenzkum bæjardyrum séð. Hann er gæddur ríkri siðgæðisvitund þess manns, sem velur sér kennimannlegt embætti á unga aldri af sannleiksþrá. Hann telur sig kommúnista, en guðlastar svo gegn fræðum þeirrar stefnu með því að segja, að sér hafi alla tíð legið mjög í léttu rúmi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.