Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 46

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 46
36 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR að haldi meðfædd rótfesta og dómgreind, en einnig sú kjölfesta, sem hann hafði fengið við háskólann í Granada: þekking á sígildum spænsk- um bókmenntum, grískum gullaldarritum, þjóðlegri tónlist, þjóðkvæð- um, -dönsum og -sögnum. Hann gat því kafað hinn nýja sjó og sótt í hann allt, sem fengur var að, án ótta um að flækjast í öllu því rótlausa þangi, sem þar var á reki. García Lorca dvaldist í Madrid næstu 10 ár, en var þó alltaf heima í Granada öðru hverju; — þessar tvær borgir urðu héðan í frá „heims- skautin í lifi hans“, eins og sænska skáldið Artur Lundkvist hefur komizt að orði. Urðu þessi ár frjóasta tímabil ævi hans. Hann lagði meginrækt við ljóðlistina, en auðgaði ljóðlistargáfu sína með iðkun annarra list- greina. Hann birti næstum ekkert af ljóðum á þessum árum — aðeins einstaka kvæði í tímaritum, stundum með ára-millibili. Orsökin er sú, að ljóðin voru ekki ætluð til birtingar. J. P. Trend gefur skýringu á þessu í ritdómi um fyrstu ljóðabók García Lorca: „í því horni Evrópu, sem alið hefur skáld þetta, eru ljóð „leikin“ eins og tónlist. Þau eru lesin eða sungin úti í trjágörðum á sumarkvöldum .. . þetta verður að hafa í huga, þegar ljóð García Lorca eru lesin: þau eru tónsmíðar að öðrum þætti; hið prentaða orð er aðeins hluti ljóðsins ...“ Þetta á við um ljóð García Lorca fremur en flestra annarra höfunda, einkum þau, sem hann orti fyrstu 5 árin í Madrid. Hann var þá „syngj- andi skáld“, samdi oft lög við Ijóð sín og „lék“ þau eða söng með píanó- eða gítarundirleik fyrir vini sína. Hann vissi, að þessar „impróvísasjón- ir“ gátu ekki notið sín á prenti og hirti því ekki um að gefa þær út. En Ijóð hans komust greiðlega á kreik fyrir því. Þau bárust út frá kunn- ingjahópnum, og sjómenn, bændur og borgarlýður hentu þau á lofti, svo að þau voru sungin um landið þvert og endilangt löngu áður en nafn höfundarins var þekkt nema í fámennum hópi menntamanna. Hefðu ljóð hans aldrei verið gefin út, væru þau nú talin þjóðkvæði. Árið 1920 var fyrsta leikrit hans, „Táljiðrildið“ (E1 maleficio de mariposa), sýnt í leikhúsinu Eslava í Madrid. Þetta var táknrænn ljóðleikur — aðalpersónur fiðrildi og kakkalakkar; það var með mörgum svipuðum einkennum og ljóð hans um þessar mundir, tilraunir með ýmiss konar stíl og áhrif frá ýmsum stefnum, sem hann var að „stúdera“. Leikritið sýnir ljóslega hin nánu tengsl ljóða hans og Ieikrita, sem héldust jafnan á síðan — þessar tvær Fyrsta leikritið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.