Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Síða 87

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Síða 87
OPIÐ LAND • LOKUÐ MENNING 77 sætið, af þeirri ástæðu, að hún er næst okkur, af því að hún er okkur kærust? Getum við skilið og metið aðrar þjóðir á sama hátt og okkar eigin þjóð? Því getur sannarlega virzt ófært verk að ætla sér að skilja og skil- greina menningu. Sennilega erum við dæmd til þess að búa einungis við hana án þess að þekkja hana. Hvað sem því líður verðum við samt að gera tilraun til hlutleysis og örlítils víðsýnis. Ekki þarf mikla skarpskyggni til að sjá, að undir því er framtíð menningar okkar að miklu leyti komin. Við getum hughreyst okkur við það (sé slíkt þá nokkur hughreysting), að öll verk mannanna fæðast og deyja undir merki efans. Engri spurningu verður til hlítar svarað. Allt okkar starf eru einungis frumdrög, sem við reynum að fága og bæta eftir beztu getu . . . án þess að því verði nokkurn tíma lokið. Þegar fólk býr í beinu eða óbeinu sambandi hvert við annað, nálgast sjónarmið þess og lífsviðhorf. Það verður fyrir gagnkvæmum áhrifum, þannig að oft er erfitt að greina í hve ríkum mæli maðurinn er gefandi eða þiggjandi. Það sem við oft álítum koma frá okkur sjálfum, eiga upptök sín í hugsun okkar, er ekki annað en ný útgáfa af gamalkunnu stefi. Hugsanalíf þjóðarinnar gengur í hring og sá hringur dregst ýmist saman eða víkkar. Menning er því í vissum skilningi kjarni skoðana og lífsviðhorfa, sem hafa þjappazt saman, sorfizt og fágazt af snertingunni og tekið á sig svipaðan blæ. Þjóðmenning er heild þeirra sérkenna, sem sameiginleg eru öllum þegnum tiltekinnar þjóðar; leiðarhnoða, sem hefur tekið ákveðna stefnu og rennur urn ómælisvegu tímans. En eins og persónugerð hvers einstaks manns er spunnin úr tveim þáttum, — því sem honum er eðlislægt og því sem umhverfið lætur honum í té, — eins er menningin bæði háð hugarfari þegna sinna og hverfulleik ytri aðstæðna. Hún á í sífelldri leit að jafnvægi milli þessara tveggja þátta. Hún er tilraun til aðlögunar milli hugmynda og veruleika. Þess vegna hlýtur hver menning að vera að einhverju leyti sveigjanleg: ein gerð (struktur) tekur við af annarri; hún hvarflar frá einni jafnvægisstöðu til hinnar, stöðugt í leit að haldbetri aðlögun. Ein spurning er þó flestum efst í huga, þegar reynt er að skilja eðli menningar: Hvernig er hægt að dæma um gildi hennar? Þessi spurning
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.