Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 98
BJ ARNI EINARSSON :
Barrows Dunliam og skoðanafrelsið
í Bandaríkjunum
Á undanförnum árum hafa hvað eftir annað borizt fregnir af ofsókn-
um bandarískra yfirvalda á hendur kunnum vísinda- og listamönnum þar
í landi fyrir þá sök eina að dirfast að hafa aðrar lífsskoðanir en þeir
blindu afturhaldsseggir sem nú sitja þar á valdastólum. Hinir ofsóttu
menn hafa eins og við er að búast brugðizt ýmislega við, sumir hafa
guggnað fyrr eða síðar og reynt að bæta fyrir sér með því að sýna iðrun
og lofa bót og betrun og jafnvel lagzt svo lágt að benda ofsækjendunum
á aðra sem hafi „hættulegar“ skoðanir. En hinir eru fleiri sem hafa ekki
látið bugast, þrátt fyrir það sem í húfi er, en það er ævinlega atvinnu-
svipting og oft fangelsisvist. Ofsóknaaldan hefur þegar skollið á þúsund-
um karla og kvenna í ólíkustu atvinnugreinum, þótt opinberir starfs-
menn og kennarar við æðri sem lægri skóla hafi einkum orðið hart úti.
Hér skal tekið nýlegt dæmi, þar sem í hlut á vísindamaður er kemur
félögum Máls og menningar dálítið við, því að hann er höfundur einnar
bókar þess félags. Þessi maður er Barrows Dunham og bókin nefndist
Hugsjónir og hindurvitni, kom út árið 1950.
Þeim sem þá bók hafa lesið, getur ekki dulizt að þar er á ferðinni
maður sem fyrr eða síðar hlaut að fara í taugarnar á McCarthy og þeim
þjóðfélagsöflum sem á bak við hann standa. Þetta er heimspekikennari
sem lætur sér ekki nægja akademiskar vangaveltur og abstraktar bolla-
leggingar, heldur tekur hann föstum tökum á algengum fordómum og
hindurvitnum varðandi þjóðfélags- og mannlíf yfirleitt, flettir ofan af
þeim lygahjúpnum og sýnir innihaldið í allri sinni auvirðilegu nekt.
Barrows Dunham hefur verið heimspekiprófessor við Temple-háskól-