Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 75

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 75
SKÁLDSKAPARAFMÆLI Þegar ég var komin í allan skrúðann var ég reglulega snotur, þó ég segi sjálf frá. En hvorki kjóllinn né silki- hettan höfðu minnstu áhrif á Peter Nansen. Hann rétti mér handritið áður en mér gafst almennilega tími til að heilsa honum og sagðist ekki skilja hvernig ungri nútímakonu gæti dottið í hug að vera að skrifa það, sem hann helzt vildi kalla „norrænan“ stíl ... „Ef þér viljið endilega vera að skrifa,“ sagði hann, „þá reynið eitt- hvað nútímalegt, til að mynda bók um ungar stúlkur. En verið ekki að spreyta yður á miðaldaskáldsögum; þér munuð aldrei hafa neina ánægju af því, vegna þess að þér eruð ekki færar um það.“ Ég var mjög gröm þegar ég hélt heimleiðis, heldur frú Undset áfram, og ég byrjaði þegar að skrifa „Frú Mörtu Oulie“, sem ég hélt að hlyti að vera nógu nútímaleg. Og fyrsta hand- ritið af „Ólafi Auðunssyni“ brenndi ég strax og ég kom heim frá Peter Nansen.“ Marta Oulie á að velja milli þess að finna „hamingjuna“ fyrir sjálfa sig eða eyða lífi sínu í þágu annarrar mannveru. Sigríður Undset leit ekki á ástina sem fortakslaust verðmæti í sjálfu sér. Hún átti að beygja sig fyrir umhyggjunni til handa eiginmanni og börnum. Þessa skoðun hafði hún þegar á unga aldri, og ef við berum saman fyrstu skáldsögu hennar frá 1907 við allra síðustu ummæli hennar sem birt hafa verið á prenti er sjáan- legt að þráðurinn í skáldverkum hennar hefur aldrei slitnað, jafn margþættur og hann var. í lok grein- ar í „Samtiden“, 3. hefti 1949, sem nefnist „Kristindómur og kynlíf“ standa þessi orð: „Enginn maður get- ur lifað lífi sínu betur á annan hátt en þann að fylgja köllun þess. En hún er, hvað flestum viðvíkur, að verja hinu bezta í sér til heilla maka og börnum.“ Marta Oulie hafði verið manni sín- um ótrú, hún staðfestir það greini- lega, í dagbók sinni um liðna daga, þegar á upphafsorðunum, og sagan sýnir, svo ekki verður um villzt, hve illa fer fyrir konum sem slíta sig laus- ar frá því samlífi sem þær hafa skuld- bundið sig til að lifa. Því athæfi fylgir aldrei nein hamingja. Þegar Marta Oulie kynntist manni sínum, Otto Oulie, varð hún ástfang- in. „Nýjar lindir spruttu upp í eðli mínu,“ segir hún í dagbókinni. Otto Oulie er venjulegur starfsamur mað- ur með ábyrgðartilfinningu andspæn- is lífinu. Þau eignast fjögur börn, en frú Oulie leiðist í hjónabandinu. Hún þráir viðburðaríkt líf og fyrirlítur hið hversdagslega, en Otto skilur ekki að það geti verið „leiðinlegt að gæta sinna eigin barna“. Svo fer hún að hafa mök við vin manns síns og kaup- sýslufélaga og „sekkur ofan í eigin síngirni, undirdjúp sem loka hana úti frá lífinu. En að lokum opnast augu hennar þegar maður hennar verður 153
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.