Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Page 24

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Page 24
TIMARIT MALS OG MENNINGAR austan stafar í rauninni einungis af því, að kapítalisminn er gróinn í sessi og hefur því ráð á því að hafa slakara taumhald á þegnunum heima fyrir (vel að merkja ekki í nýlendum eða þar sem áhrif hans eiga í vök að verj- ast). En sósíalisminn er hinsvegar enn á byrjunarskeiði og hefur til þessa dags þurft að einbeita öllum kröftum sínum að ákveðnu marki; hann hefur sízt af öllu getað hvílt á lárviðarlaufi gamallar menningar. En viðmiðunin er tvímælalaust kommún- istum hagstæð, því með hverju ári rýmkast skoðanafrelsið í Sovétríkj- unum, en þrengist að sama skapi í „hinum frjálsa heimi“ (sbr. valda- töku einvaldans De Gaulle í Frakk- landi) og einnig á „verndarsvæðum“ og í nýlendum „málsvara frelsisins“ (sbr. Suður-Afríku). Jafnframt mættu vestrænir rithöf- undar verða sér þess vísari, með hverskonar hugtakafölsun borgararn- ir hafa ruglað saman reitum sínum við hugmyndir þeirra, — og að ein- staklingshyggja og andlegt frelsi er sitt hvað: að einstaklingshyggjan er afsprengi borgaralegrar menningar, og hlýtur að úreldast með henni; að eftir því sem tækniþróuninni fleygir fram og störf og menntun þjóðfélagsþegnanna verða margbrotnari og sérhæfðari, verður æ augljósari þörf samvirkra þjóðfélagshátta, og sérgildi einstakl- ingsins minnkar að sama skapi. (Það er timanna tákn að hugtakið „fjöl- skylda þjóðanna“ er okkur ekki leng- ur fjarstæða); að krafan urn andlegt frelsi er sí- gild og á sízt betur heima í kapítal- ísku en kommúnísku þjóðfélagi; að hún er alþjóðleg og eilíf, og að það verður sífellt að bera hana fram við alla valdhafa, hverju nafni sem þeir nefnast. Engum er ljósara en rithöfundum hve ófrjótt og hættulegt það er að reisa skorður við andlegu frelsi. En hitt er vestrænum rithöfundum tæp- lega jafn ljóst, að það er jafnvel enn hættulegra ef rithöfundar taka sjálfir að reisa skynsemi sinni skorður af hleypidómum eða persónulegu stolti fyrir hönd stéttar sinnar; ég á við ef þeir mikla svo fyrir sér timabundna frelsisskerðingu stéttarbræðra sinna í alþýðuríkjunum, að þeir sjái ekki þá staðreynd að með hinni hraðstígu uppbyggingu sósíalismans er verið að leggja grundvöll að nýrri og miklu víðtækari menningu og andlegu frelsi en auðvaldsheimurinn er fær um að skapa þegnum sínum. Þegar öll sjónarmið hafa verið lok- uð úti önnur en þau, að berjast gegn kommúnismanum, — að stemma stigu við félagslegri þróun, sem tröll- stíg iðnvæðing gerir nauðsvnlega, og ganga í því skyni í bandalag við ný- lendustórveldi og arðræningja (elleg- ar halda að sér höndum í neikvæðum óttal, þá fara mannúðarhugsjónir rit. 14

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.