Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Blaðsíða 65
SVERIiIR KRISTJÁNSSON
Um nokkur bréf Matthíasar Jocliumssonar
FVRIR nokkru koni út nýtt bréfa-
safn eftir séra Matthías Jochums-
son, bréf hans til Hannesar Hafsteins,
í vandaðri og greinagóðri útgáfu
Kristjáns Albertssonar. Er þetta góð
viðbót við Bréj Matthíasar, sem Stein-
grímur læknir sonur hans gaf út 1935,
en þó eru ekki öll kurl komin enn til
grafar, því að mikill fjöldi bréfa
Matthíasar er enn óútgefinn og má
þar einkum nefna bréf hans til er-
lendra manna og væri ekki ófróðlegt
ef gerð væri gangskör að því að hafa
upp á þeim. Mér er til efs hvort nokk-
ur annar íslenzkur maður samtíða
séra Matthíasi hafi skrifazt svo mjög
á við erlenda menn og hann. Alla
ævi var Matthías Jochumsson að
brjótast út úr íslenzkri einangrun,
honum var rík innri þörf að blanda
geði við erlenda menn, enda fann
hann sárt til þess hve andlega ein-
mana hann var um langa stund meðal
landa sinna. Á skjalasöfnum Kaup-
mannahafnar er allmargt bréfa frá
Matthíasi bæði til íslendinga og er-
Iendra manna og hafa þau lítt verið
könnuð. Þó má geta þess hér, að í
hinni miklu bréfaútgáfu Brandesar-
bræðra, Georgs og Edvards, hafa ver-
ið birt bréf Matthíasar til Georgs
Brandesar: Georg og Edv. Brandes
Brevveksling med nordiske Forjat-
tere og Videnskabsmœnd, III. bindi,
1940.
Það má furðulegt heita, að enginn
skuli hafa orðið til þess, innan kirkju
eða utan, að gera séra Matthíasi Joc-
humssyni nokkur skil, svo merkileg
sem ævi hans er og andleg þróun öll.
Hann er ásamt séra Páli Sigurðssyni
í Gaulverjabæ einn fyrsti klerkur ís-
lenzku þjóðkirkunnar, sem varpar af
sér viðjum hins lúterska rétttrúnaðar,
reynir að dæla nýjum lífsstraumum
inn í hið aldna hrör kirkjunnar, er
jafnan fullur efasemda, á í látlausri
baráttu við að skilja tilveruna og
sætta hana við sína íslenzku barna-
trú. Það væri vissulega veglegt verk-
efni menntuðum guðfræðingi að
rekja ævi og þróun hins gamla skáld-
mærings, sem lifði fastar með öld
sinni og andlegum idðfangsefnum
hennar en dæmi eru til um aðra sam-
tíðarmenn hans íslenzka.
55