Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Síða 32

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Síða 32
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR tímum. Þetta eru ljóð Jónasar í myndum. Þarna eru „fífilbrekka gróin grund“ og „grösug hlíð með berjalautum“ endurfæddar. Kristjón skildi vel, þegar ég sagði „endurfæddar“, því að hann kunni endur- holdgunarkenninguna. Hinn rakarinn, sem vann á stofunni hjá Kristjóni, hafði nú fengið einn órakaðan í stólinn til sín. Ég hafði oft virt hann fyrir mér í laumi og hugsað: Skyldi honum ekki mislíka það við mig, að ég læt hann aldrei klippa mig, ekki einu sinni skafa af mér skeggið. Þetta var góðlegur maður og laglegur, með ofurlítið innhverft andlit. Mér datt oft í hug: Hann er liklega ekki rauður. „Jæja vinur, hvernig gengur það fyrir vestan?“ spyr ég Kristjón. „Það gengur vel.“ „Hefur einfótungurinn sést síðan?“ „Nei.“ „Hvað heldur þú að einfótungurinn hafi verið?“ „Það get ég ekki sagt. En hann hefur ekki verið hugarburður, því það var greind og merk kona, sem horfði á hann vega sig áfram á stönginni neðan frá sjó upp að fjalli, og það var í björtu um morguninn. Hún var að hleypa kind- um í haga.“ Og nú skellti Kristjón klippunum á borðið fyrir framan manninn og brá sér inn í klefa, sem lá austur úr rakarastofunni, staldraði þar við tæpa mínútu, kom svo aftur og gekk léttum skrefum til mannsins í stólnum, greip klippurnar af borðinu og hélt áfram verki sínu og hallaði höfðinu á ýmsa vegu, Iíkt og hann væri að leggja kollhúfur. Hvern fjandann var hann að gera inn í klefann? hugsaði ég. Ég gat ekki séð, að hann ætti neitt erindi þangað. Ég tek aftur upp samtalið og segi: „Ef þeir eru skapaðir þarna vestra eins og annað fólk, þá ættu þeir ekki að sjá ofsjónir á morgnana. Heldurðu að þetta hafi getað verið Bárður Snæfellsás?“ „Nei! Hann gekk nú á tveimur fótum eins og við, sá kall.“ „Heldurðu að Bárður Snæfellsás hafi verið til?“ „Hann hefur verið til sona eins og aðrar þjóðsagnapersónur.“ „Óklárt svar, konningi. Þjóðsagnapersónur eiga sér ýrniss konar uppruna.“ „Hefurðu séð Bárðarkistu?“ „Ekki so ég muni. En ég hef heyrt talað um hana.“ „Það er það mesta náttúruundur, sem ég hef séð. Hún er alveg eins og kista, með kúptu loki og lykli, sem stendur í skráargatinu. Það er sagt, að í henni hafi Bárður lokað gullið sitt.“ „Hvar er hún nú aftur?“ „Hátt uppi í fjalli sunnan á nesinu.“ 22
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.