Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Síða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Síða 38
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Bessi svaraði engu og glotti niður fyrir sig. Við vorum komnir að suð- austurhorninu á kirkjugarðinum, þar sem vegir okkar skildu. Þessi frásögn Bessa af drykkjuskap og skattsvikum Kristjóns, ef ekki mút- um og hlutdeild í smygli, hafði mjög sterk áhrif á mig. Ég reiðist alltaf sjálfum mér, þegar menn sem ég þekki, reynast ver en ég hef þótzt sannfærður um, að þeir myndu reynast. Mér finnst ég hafi verið heimskur að sjá ekki dýpra inn í þá, og heimska er sú vöntun, sem ég á erfiðast með að sætta mig við í fari mínu. Ég hafði lifað í þeirri fögru trú, að Kristjón væri bindindissamur og frómur í viðskiptum við mannlífið. Ég áfelldist hann samt ekki svo mjög, sem sumir myndu halda, sem muna þessa skikkanlegu tíma og viðbjóð minn á drykkjumönnum og tollsvikurum. Ég skellti skuldinni á siðleysi kapítalismans, sem hefði gert góðan dreng að þessari skepnu. Þegar ég heimsótti kunningja mína á kvöldin, voru þeir oft vanir að segja: „Segðu nú eitthvað skemmtilegt!“ Þá sagði ég þeim gjarnan sögu Bessa af Kristjóni rakara, og ég dró það ævinlega skýrt fram í frásögn minni, að það væri auðvaldsskipulagið, sem ætti höfuðsökina á niðurlægingu Kristjóns, og mér fór að þykja vænt um, að svona skyldi hafa farið fyrir honum. Eg fór að líta á hann sem velgerðamann sósíalismans og verk hans sem óvefengjanlegan dauðadóm yfir þjóðfélagi, sem drægi menn svona niður í skítinn. „Þetta er þjóðfélag þjófa og ræningja,“ sagði Bessi. Þannig breiddist sagan af Kristjóni smám saman út um allan bæ, og hann varð kærkomið umtalsefni í fjölda húsa, einkanlega þar sem fólk leið af skorti á efnivið til vandlætinga. Ég fór nú að heyra söguna hér og þar utan að mér og rak mig á, að ýmsir sögðu hana ýtarlegar en Bessi. Margir fullyrtu, að húsið væri ekki eitt, sem hann sviki undan skatti, heldur vær þau tvö og annað stæði niðri í Blesagróf. Ollu viskýinu, sem hann drykki, væri smyglað inn með íslenzku skipunum. Þar að auki væri það á margra vitorði, að hann laumaði inn í landið fyrir framan augun á tollskoðuninni miklu af snyrtivörum og seldi þær hárgreiðslustofum og rökurum með góðum ábata. Ennfremur var fullyrt, að hann væri í helmingaskiptum við Thorolf Manbú um ólöslent kvennafar á Hótel ísland og úti í vissum skipum á höfninni, en Manbú hefði gert reisu vestur um haf til að kynna sér nýjungar í þess konar viðskiptum, þó að leynt færi. Og þá sögu heyrði ég konur segja hér og þar úti um bæ, að Kristjón hefði átt króa fram hjá konunni með dækju ofan af Akranesi, sem hann hefði svo sent til Kaupmannahafnar til að fæða ungann, og frá henni hefði ekkert frétzt síðan. Og nú héldi hann við skepnu vestan úr Ólafsvík og konan hans væri lögzt í rúmið út af háttalagi hans. 28
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.