Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Síða 42

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1960, Síða 42
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR „Já hættur að raka.“ „Og hvers vegna hætti hann að raka?“ „Það er allt kjaftinum á þér að kenna,“ svarar Bessi og varð eins og hann vaknaði af dvala. Fólk var hætt að koma á rakarastofuna. Hann stórtapaði á henni síðustu mánuðina. Hann varð að leigja íbúðina sína. Þau héldu aðeins einni stofu eftir, sem þau hírast i. Og þau urðu að selja mikið af húsgögnunum sínum til þess að geta staðið í skilum með útsvar og skatta,“ og það lá við að Bessi færi að gráta. „Hvernig er þetta mér að kenna?“ spyr ég eins og ofan af fjöllum. Þá þýtur Bessi upp af dívaninum og stillir sér upp fyrir framan mig og hvessir á mig augun eins og brjálaður maður og öskrar næstum: „Hvernig er þetta mér að kenna? Þú spyrð eins og þú sért saklaus engill, og hefur þó geng- ið hús úr húsi og borið út um Kristjón svívirðilegasta óhróður, sem fólk hefur verið nógu einfalt að trúa.“ „Hver sagði mér söguna af visk ...“ „Þegiðu, svínið þitt! Þú ert búinn að eyðileggja líf eins bezta vinar míns. Heyrirðu það?“ Og Bessi reiddi upp hnefann, eins og hann ætlaði að berja mig. „Þú hefur þanið þig um bæinn og talið fólki trú um, að Kristjón væri ofdrykkjumaður og smyglaði inn áfengi og snyrtivörum og sviki tvö hús undan skatti og ræki hóruhús á Hótel ísland og skipaskækjulifnað á höfninni og héldi fram hjá konunni og hefði sent stelpuna ólétta til Kaupmannahafnar og væri nú tekinn saman við annað skrípi. Og kjaftadækjurnar hafa tuggið upp eftir þér: „Það getur engin ærleg móðir verið þekkt fyrir að fara með barn sitt í klippingu inn fyrir dyr hjá sona ódámi.“ Og so spyr þú: „Hvernig er þetta mér að kenna?“ Ertu so blindur á sálinni, að þú sjáir ekki, að með þessari rógsiðju hefurðu flæmt Kristjón úr góðri atvinnu og rúið hann inn að skyrtunni fjárhagslega og eyðilagt mannorð hans um aldur og ævi, því að það er auðveldara að sá rógi en að uppræta ávexti hans. Og þó er það kannski versta verk þitt, að þú hefur lagt konuna hans í rúmið. Hún var lengi búin að vera veil fyrir hjarta og féll alveg saman, þegar hún frétti héðan og þaðan utan að sér söguna af óléttu stelpunni, sem maður hennar hefði sent til Kaup- mannahafnar. Og so fullkomnaðirðu verkið, þegar lögreglan gerði húsrann- sókn heima hjá þeim og á rakarastofunni og á Hótel ísland og jafnvel úti i skipunum á höfninni út af þvætlingi þínum um smyglið og hórurnar. Og það er óvíst að hún nái sér nokkurntíma aftur. Og þú spyrð víst ennþá: „Hvernig er þetta mér að kenna?“ Og nú kom grátsífur í rödd Bessa. Hann rölti að dívaninum og settist og starði í gaupnir sér. v 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.