Tímarit Máls og menningar - 01.05.1961, Blaðsíða 10
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Og allt í einu ber hann tillögu fram:
aS olía skuli keypt fyrir brjóstmyndarféS
og hellt yfir feniS handan viS úlfaldagarSinn,
þaSan sem mýiS kemur <;r
sóttina ber.
Þannig myndu þeir berjast gegn sóttinni í Kúfan-Búlak
og jafnframt heiSra hinn látna, þann
sem aldrei mun gleymast,
félaga Lenín.
Þeir samþykktu þetta. Á minningardaginn báru þeir
beyglaSar jötur, jullar af svartri olíu,
hver af öSrum
út og helltu yfir feniS.
Þannig unnu þeir sjálfum sér gagn um leiS
og þeir heiSruSu Lenín og heiSruSu hann
um leiS og þeir unnu sjálfum sér gagn og þannig
skildu þeir hann.
Við höfum heyrt hvernig fólkiS í Kújan-Búlak
heiðraði Lenín. Og þá um kvöldið
er olian hajði keypt verið og henni hellt yfir fenið,
stóS upp maður meðal þeirra og mœltist til
að sett vœri upp skilti þar á járnbrautarstöðinni
með jrásögn þessa máls þar sem bœði
þess væri getið er fyrst var fyrirhugaS
og síðan breytt, er skipt var á brjóstmynd Leníns
og nok/crum tunnum með sóttareySandi olíu.
Og allt þetta Lenín til heiðurs.
Og einnig þetta var gert
og skiltið sett upp.
GRÍMA ILLSKUNNAR
Á vegg mínum hangir japönsk útskurðarmynd,
illskuleg drýsilgríma, smurð gulri gljákvoðu.
Með samúð skoða ég
tútnaðar œðar ennisins er lýsa
áreynslu þeirri vel, að vera illur.
88