Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Page 37
ÞER PREDIKAKAR, VERIÐ MISKUNNSAMIR halda til þess að halda sér alltaf jafn brennandi í andanum. Svo er t. d. um þá sem telja sig þurfa á prédikara að halda til þess að kynda undir elsku sinni á forsjóninni. Sama máli gegnir um hina, er finna sálu sinni fró í því að hata kommún- ista. Þeir þurfa einnig á prédikara að halda, til þess, að hatrið haldist alltaf upp við suðumark. Ekkert er heldur því til fyrirstöðu og raunar talsverð tízka, að sami prédikarinn leiki bæði þessi hlutverk. Þetta er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, því samkvæmt kenning- um ýmissa prédikara hefur kommún- isminn leyst djöfulinn af hólmi, eða er að minnstakosti talinn umboðs- maður eða staðgengill hans í hinni syndum spilltu veröld. Það gegnir að vísu nokkurri furðu, að flestir prédikarar miða ræður sín- ar við þarfir þeirrar manntegundar, sem að framan hefur verið lýst, við þá sem eru brennandi í andanum, bæði í ást og hatri, enda þótt þeir viti, eða ættu að vita, að slíkir eru þó aðeins lítið brot af þeim er prédikun- in nær til. Þetta fyrirbæri nær inn á nálega öll svið prédikarans. Ræðan er alltaf miðuð við þarfir og kröfur þeirra, sem í raun og veru þurfa engra betr- umbóta við. Krafa prédikarans um að áheyrandinn taki við kenningunni eins og hún kemur fyrir af skepnunni, verður aldrei tekin til greina af öðr- um en þeim sem eru staddir á sömu andlegu breiddar- og lengdargráð- unni og prédikarinn sjálfur. Hinir snúast til varnar. Það er eitthvað í þeim, sem ris gegn því að beygja sig skilyrðislaust fyrir prédikaranum. Ef til vill hefðu þeir getað komið til móts við prédikarann, verið tilleiðan- legir til þess að semja við hann um að fallast á kenningu hans að ein- hverju leyti kannske að einum fjórða, eða jafnvel helming. En það er eitt- hvað í þeim, sem rís gegn hundrað prósent kröfunni og endirinn verður sá, að þeir hafna öllu. Jafnvel þótt prédikarinn hafi verið rétt að því kominn að ná fullkomnu tangarhaldi á tilheyrandanum, missir hann af feng sínum, verði honum sú reginskyssa á að segja: Sá sem ekki er með mér, hann er á móti mér. Á- heyrandinn stingur við fótum og hon- um verður ekki þokað lengra, og fyr- irhöfn og erfiði prédikarans er unnið fyrir gýg, því árangurinn verður minni en ekki neitt. Prédikarinn þolir ekki hlutleysi, hann heimtar annað hvort allt, eða ekkert. Og prédikarinn vitnar gjarna í Krist, máli sínu til framdráttar, Krist- á nefnilega að hafa sagt: Hver sem ekki er með mér, hann er á móti mér. Hafi Kristur sagt þetta, hefur hann þó ekki breytt samkvæmt því, að því er sagan hermir, því það á að hafa farið 227

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.