Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Page 76

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1963, Page 76
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR kvæðin urðu til), — „neraa auðvitað hreins- aðan af ósóma (það dugir ekki að segja: varði „kvítan“ háls Völundar). Allt annað verður kák“. Jón víkur einnig nokkrum orðum að flutningi eddukvæða og veitir þar leiðbein- ingar. Af því leiðir sem áður segir um varð- veizlu kvæðanna að skýringar geta oft ekki orðið annað en viðleitni, og höfundur dreg- ur engar dulur á að því er svo farið, er lítið gefið um hæpnar getgátur þegar fátt eða ekki er við að styðjast. Á einum stað getur hann um haglega gerðar hugsmíðar kunnra vísindamanna tveggja, án þess að leggja nokkuð upp úr þeim. og bætir við: Þannig má gera sér margt í hugarlund þegar allar heimildir þegja. Bókin er ætluð almenningi og höfundur tekur skýrt fram að hann vinzar það sem honum þykir nýtilegast úr ritsmíðum fræði- manna um þessi kvæði, en þær eru feikna- miklar en ekki að sama skapi merkar allar saman. Hins getur hann ekki að hann bætir við frá eigin brjósti ófáum athugunum sem ekki hafa áður birzt á prenti. Alþýðleg er bókin í þeirri merkingu að hún veitir al- menna fræðslu um kvæðin auk þess sem hún vekur athygli á vandamálum þeirra og hvernig við þau er glímt á vísindalegan hátt. Alþýðlegur þýðir ekki hér að neitt sé slegið af kröfum um vísindaleg vinnubrögð. Þó þarf enginn að óttast þurra fræði- mennsku, — sá hlutur á ekki skylt við höf- und þessarar bókar. Skýrt er greint í sund- ur hvað vitað er með vissu, hvað er óvíst og hvað ekki verður vitað eða er óskiljanlegt. Stundum eru aðeins gefnar bendingar um hvar svars kunni að vera að leita, eða að- eins varpað fram spurningum, — ávallt gætt allrar varúðar í dómum. Þessar tvær kviður eru furðu ólíkar, en svipuð er forneskjan og leyndardómurinn, og uppruna beggja er að leita með ger- mönskum þjóðum suður á Þýzkalandi og Englandi. „Völundarkviða er ekki frum- smíð. Bak við hana hillir undir annað kvæði sama efnis á annarri tungu ... Þetta var í þá tíð þegar munur á germönskum málum, þýzku, ensku og norrænu, var lítill hjá því sem síðar hefur orðið, svo að kvæði gátu hæglega borizt á milli, þó ekki án þess að þeim væri vikið nokkuð við. Og þá tíðk- aðist samskonar stuðluð ljóðagerð á þess- um tungum öllum“ (50. bls.). — „Straumar menningarinnar hafa löngum stefnt úr suðri til norðurs. Þá má gera ráð fyrir að elzta Atlakviða hafi verið ort með Þjóð- verjum ... Þaðan mundi þá þetta kvæði hafa borizt norður eftir og verið snúið til norrænnar tungu“ (127. bls.). Þessi skoðun er á traustum rökum reist sem of langt yrði að telja hér. Undir lok kaflans um Atlakviðu leiðir Jón Helgason í ljós auðkenni í stfl kvið- unnar sem eru fágæt í norrænum kveðskap, en alkunn í fomenskum og fomsaxneskum kvæðum, — og auk þess eitt sem sýnir sér- stök tengsl Atlakviðu og Bjólfskviðu, fræg- asta fornkvæðis Englendinga. Þetta er nógu merkilegt út af fyrir sig, en áður en höf- undur lýkur þessum inngangi Atlakviðu gerir hann sér lítið fyrir og bendir á alvar- lega meinbugi á frægri tilgátu þýzks fræði- manns sem fyrir allmörgum árum þóttist hafa sýnt fram á að kviðan væri verk Þor- bjarnar hornklofa, skálds Haralds hárfagra, sökum margvíslegra tengsla hennar við Haraldskvæði. — Allir geta gengið úr skugga um hverjar nýjungar em hér á ferð- inni, með því að bera saman við íslenzka fornbókmenntasögu sem kom út hér í bæ um likt leyti og Tvær kviður fornar. Ekki skal f jölyrt um skýringamar þótt af nógu væri að taka til fróðleiks og skemmt- unar. Sumum vísum fylgja ekki nema tvær eða þrjár línur, en yfirleitt fylla skýring- amar miklu meira rúm en vísumar sjálfar, 266

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.