Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 36
Tímarit Máls og menningar
ólafur: Takktakk. Takktakk. Hehe. Sízt af öllu vildi ég vera uppáþrengjandi
... maður í minni stöðu, hehe.
ANANÍAs: Tylltu þér þarna á stólinn rétt meðan ég skrepp fram í eldhús að
kveikja undir katlinum ...
(Fer fram í eldliús).
ÓLAFUR (gengur um gólf, liummar óstyrkur).
guðbjörg: Eg hef verið svo lengi rúmföst ... varla lyft höfði frá kodda ...
og þetta er engin tiltekt hjá honum, honum Ananíasi. Hann er ekki hús-
legur, hann Ananías.
ólafur: Gerir ekkert, frú. Ekki nokkurn skapaðan hlut.
GUÐBJÖRG: Maður er ekki í standi til að taka á móti fólki.
ÓLAFUR: Gerir ekki nokkurn skapaðan hlut, frú.
guðbjörg: Maður hefur þó alltaf gaman af að sjá framan í einhvern ...
ólafur: Já, auðvitað, hehe, það hlýtur að vera ósköp gaman. Hm. Það hlýtur
að vera bágt að liggja svona.
guðbjörg: Það er gigtin ...
ólafur: Gigtin já. Einmitt.
guðbjörg: En hún er ekki verst ... það er Iíka fyrir brjóstinu ...
ólafur: Jahá ... fyrir brjóstinu líka.
GUÐBJÖRG: Þú ert maðurinn uppi? A kvistinum trúi ég?
ólafur: Já, ég leigi þar til bráðabirgða. Ég flyt bráðum, hihi, við erum að
byggja.
guðbjörg: Þó er nú gigtin og þetta fyrir brjóstinu, það er hrein hátíð hjá
ristlinum.
ólafur: Ristlinum, einmitt. (I nýjum tón): Og þið teflið skák ... svona
ykkur til afþreyingar!
guðbjörg: Skák?
ÓLAFUR: Já, ég sé þið hafið verið í miðju kafi ... svo kem ég og trufla.
GUÐJBÖRG: Tefla! Það er hann Ananías. Hann teflir.
ÓLAFUR (skoðar stöðuna): Jahá, það er Ananías sem teflir.
GUÐBJÖRG: Já, það er Ananías sem er að þessari bölvaðri vitleysu. Þetta er
ekkert nema tímaþjófur ... hann sinnir ekki öðru ... það er rétt svo ég
get mjakað honum til að gefa mér meðölin ... læknirinn sagði tværskeiðar
á tveggja tíma fresti ... og ég á eftir að fá seinni skeiðina ... svo eru það
töflurnar ... og bakstrarnir á mjöðmina og mjóhrygginn ... Og Ananías.
Hann gleymir sér yfir skákinni ... ég fæ aldrei meðölin á réttum tíma ...
og það verður að passa uppá hann gefi mér rétt úr glösunum ...
242