Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Síða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Síða 38
Timarit Máls og menningar ÓLAFUR: A-ha. Ég skil! Þú ert að tefla upp úr tímariti! Eða tefla við sjálfan þig? Hah! Svona þér til afþreyingar! ANANÍAs: Nei. Þetta er alvarleg skák. guðbjörg: Ananías! Ég átti alltaf eftir seinni skeiðina! Ananías! Og töflurn- ar! Ananías! ananías: Ég er að tefla við kunningja minn ... ólafur: Æ, auðvitað! Og hann hefur þurft að bregða sér frá. Þá hef ég eng- an rétt til að blanda mér í málið. Fyrirgefðu, fyrirgcfðu, hehe! guðbjörg: Ananías! ,'NANÍAS: Ég er að tefla við kunningja minn í Kanada. ólafur: í Kanada? ... A-hah! Bréfaskák! Jahá! Bréfaskák! ananías: Stendur heima. Það er Vesturíslendingur ... fluttist vestur upp úr aldamótunum ... uppeldisbróðir minn ... við byrjuðum á þessu í rælni ... höfðum teflt mikið strákar ... og héldum svo áfram bréflega. ólafur: Jahá. Þetta verð ég að segja þeim á skrifstofunni! Það veit ég deild- arstjóranum finnst þetta aldeilis stórmerkilegt! ... Hvað eru komnar marg- ar skákir? anani'as: Þetta er sú þriðja. ólafur: Sú þriðja frá aldamótum! ANANÍAs: Já, á þessari byrjuðum við alþingishátíðarárið ef mig misminnir ekki ... það var fremur róleg byrjun hjá okkur ... við vorum að skipta upp peðunum þetta fram eftir kreppuárunum ... hann hafði byrjað með hvítt á drottningarbragði ... já, það gerðist lítið næstu árin nema hann hafði af mér riddara ... það voru stopular skipaferðir í þá daga og ég hverja stund að dytta að húskofanum ... við áttum húsnefnu í þann tíð ... svo var það í stríðsbyrjun að ég náði af honum biskup ... og þá fer hann að herja á kóngsvænginn hjá mér og það var um það bil sem fór að halla undan fæti fyrir Þjóðverjum sem ég rokkera ... guðbjörg: Ananías! Mixtúran mín! ananías: Svo fóru þeir nú að senda póstinn með flugvélum eftir stríð og þá fór nú allt að ganga fljótar ... það voru nú meiri framfarirnar á öllum sviðum upp úr stríðinu ... það hefði orðið upplit á gömlu körlunum ef þeir sæu trillurnar nú til dags með dýptarmæla og talstöðvar og allt þetta nýja dót, þá þótti nú gott að hafa glóðarhausmaskínu og þurfa ekki að róa ... guðbjörg: Ananías! ananías: Jæja ... svo legg cg svolitla gildru fyrir hann og gef honum kost 244
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.