Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 88

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Page 88
Tímarit Máls og menningar hagur og orðglaður; list hans minnir oft á útskurð. Ilann getur lýst einstökum atrið- um með skýrum dráttum, en hitt skortir stundum á, að samhengið í frásögninni verði nægilega lífrænt eða sannfærandi. Manni getur stundum dottið í hug, að hefði Gunnar verið uppi fyrir þúsund ár- um, þá hefði hann annaðhvort lagt stund á að skera út myndir, sem endursögðu goð- sögur eða hetjusögur, ellegar þá yrkja dróttkvæði um slíkar myndir. Hugsjónir Gunnars ráða of mikið yfir frásögninni. Hugmyndir hans um mannlegar dyggðir eru stundum nokkuð þröngar. Þetta á í rauninni við um margar sögur hans, en flestar þeirra eru að einhverju leyti sögu- legar skáldsögur. Fjallkirkjan er undantekning, og hér nýt- ur Gunnar sín til fulls. Skáldinu lætur sem sagt miklum mun betur að fjalla um það stef, sem sótt er til minninga hans sjálfs, en hitt stefið, sem þegið er úr bókum og reynslu annarra manna. Fjallkirkjan er dýrðarverk, og þau eru ekki mörg bók- menntaafrek íslendinga, sem hægt er að taka til samanburðar. Heildarútgáfa af skáldsögum Gunnars Gunnarssonar má kallast hið þarfasta verk, og hin nýja útgáfa er yfirleitt vel úr garði gerð. Þó kann ég illa við biblíusvartan kjölinn með gylltum stöfum. Slíkt á ef til vill ekki illa við sumar sögulegu skáldsög- umar, en er þó í hróplegu ósamræmi við innsta kjamann í list skáldsins, þar sem honum tekst bezt upp. Og þótt hægt sé að sætta sig við þenna gljádökkva og letur- gullna svip á kili Borgarættarinnar, þá stingur biblíuliturinn í stúf við heiðríkj- una í Fjallkirkjunni. Prýðilegt var að fá skrá Haraldar Sigurð- arsonar um rit Gunnars Gunnarssonar, því að af henni er hægt að fylgjast nokkuð með ferli skáldvíkingsins austur í löndum og síðan heima eftir útlegðina. Ritskráin er einstaklega þörf fyrir þá sök, að ritsafninu fylgir engin önnur greinargerð um skáldið og list hans. Mér hefði fundizt einkar vel til fundið, ef Gunnar Gunnarsson hefði sjálfur fylgt þessu safni úr hlaði með rit- gerð um afstöðu sína til skáldsagnagerðar. Margar skáldsögur Gunnars vora frum- samdar á annariegri tungu, og birtust síðar á íslenzku í þýðingu ýmissa manna. í hópi þeirra, sem snöruðu skáldsögum Gunnars á móðurmálið, eru sumir fremstu þýðendur vorir, svo sem Halldór Kiljan I.axness, Ja- kob Smári og Magnús Ásgeirsson. Þýðing- arnar njóta þess að sjálfsögöu, hve mikil- hæfir rithöfundar lögðu þar hönd á verkið. Fjallkirkjan íslenzka hefði vafalaust orðið nokkuð önnur, ef einhver annar en Halldór Kiljan Laxness hefði snarað henni á ís- lenzku. En allt um það er stíll Gunnars Gunnarssonar svo persónulegur og magn- aður, að engum fær dulizt sú mikla skáld- sýn, sem Gunnar einn hefur skynjað, þótt öðrum mönnum hafi auðnazt áð leiða þakk- láta lesendur í hugarheima skáldsins. Löngu eftir að þeir hafa látið frá sér bæk- urnar, þá bergmála í hugum þeirra einstök atvik, stemningar og lýsingar, á svipaðan hátt og ódauðlegum þjóðkvæðum verður ekki gleymt. Hver hefur byrjað bók jafn- glæsilega og Gunnar í Leik aS stráum og haldiÖ sama tóni og blævi að sögulokum? „Þau ár, þegar ég enn var ungur og sak- laus ... þegar ég grillti ekki í kvöldið á morgnana og sat öruggur í skjóli undir grasi grónum moldarvegg; þau ár eru lið- in og koma aldrei aftur.“ 1 Fjallkirkjunni er ekki einungis lýst ótal horfnum og dýr- mætum atvikum og tilfinningum, heldur er þetta allt ein sönn og h'fræn heild, sárs- aukakennd og hugljúf í senn. SkáldverkiÖ þroskast og vex á jafnóumflýjanlegan hátt og lífið sjálft. Hermann Pálsson. 294
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.