Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Qupperneq 96

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1964, Qupperneq 96
Timarit Máls og menningar reikningsskil Brands sjálfs við Frey, vin og verndara ættar hans um aldaraðir. Stórskáld setja rit sín saman,knúin af innri nauðsyn, ckki til að skemmta cinum nc neinum. Brandur Jónsson var margþættur maður. Ilann var að sjálfsögðu vcl kristinn prestur og skyldurækinn, en jafnframt var hann stoltur höfðingi af rammheiðinni ætt. Mann- gildishugsjón hans og freysgyðlingahöfð- ingjanna forfeðra hans var harla áþekk. Þótt Ilvíti kristur ælti mikil ítök í sálu hans var hann þó jafnframt bundinn Frey römmum taugum eins og Ilrafnkels saga bcr með sér. Þorgils saga greinir og Ijós- lega frá átökunum í huga lians milli heiðni og kristni. Venjulcga gera mcnn sér óijósa grein fyrir því hve vandratað er í myrkviði slíkra rannsókna sem þessi er, því er ekki undar- legt þótt Ilermann kunni að hnjóta við og við í því torleiði; furða ef svo væri ckki. Nú eru liðin tvö ár síðan rannsókn þessi var gefin út í bókarformi, og hefur cnginn fræðimaður andæft skoðun hans á prenti né reynt að hrekja liana. Það virðist þvi svo sem allir hafi samþykkt hana með þögninni, enda ekkert undarlegt þótt marg- ir séu honum samdóma. En þar sem rann- sókn þessi snertir hin mikilvægustu atriði í sögu og bókmentum 13. aldar, er það þó hin mesta furða að enginn af okkar ágætu fræðimönnum á því sviði skuli hafa ritað um bókina og látið í ljós skoðun sina á henni. Skúli Þór'Sarson. Þörf handbók veir danskir fræðimenn, Hans Bekker- Nielsen og Thorkil Damsgaard Olsen, hafa tekizt á hendur nytsamt verk öllum þeim sem við norræn fræði fást, en það er árleg skrá um bækur og ritgerðir sem varða vesturnorræn fræði,1 cn fyrsta heftið, um hækur scm út komu á árinu 1963, er nýlega kotnið á prenl. Skráin er gerð í samvinnu við Konunglega bókasafnið í Kaupmanna- höfn, en að auki hafa ritstjórarnir fengið samstarfsmenn víðar á Norðurlöndum, og er próf. Halldór Halldórsson fulltrúi íslend- inga í þeim hópi. Efnið scm skráin nær yfir eru rit um vcsturnorrænar tungur og bókmenntir til loka miðalda, ásamt miðaldasögu vestur- norrænna þjóða mcð skyldum fræðigrein- um, svo sem trúarbragðasögu og menning- arsögu (fornleifafræði er ekki tekin með). Ymsar ritaskrár svipaðs eðlis hafa komið út um langt skeið, en hvorttveggja er að þær hafa ýmist verið miðaðar við víðara eða þrengra svið og sumar þeirra eru orðn- ar hýsna langt á eftir tímanum. En það er eitt meginskilyrði þess að slíkar skrár komi að fulluin notum að þær komi lesendum í hendur eins Iljótt og nokkur kostur er. Vonandi tekst útgelendum að halda áætlun þessarar skrár eins og til er stofnað. Um gagnsemi slíkra rita sem þessa er þarflaust að eyða mörgum orðum. Fæstir fræðimenn — a. m. k. hér á landi — eiga þess kost cða hafa tíma til að pæla sjálfir gegnum öll þau tímarit og safnrit þar sem hirtast kunna ritgerðir sem þeim væri þarf- lcgt að vila um. Höfundar þessarar skrár segja að vísu að þar sé ekki allt tínt til, lieldur sé nokkuð vinzað úr, en reynt að sleppa engu sem máli skiptir. Sjálfri skránni er raðað eftir höfundum, en aftan við er allrækileg skrá um helztu efnisatriði ritanna. Þar sem titlar rita segja ekki ótvírætt til um efni er stuttum skýr- ingum bætt við; rúmsparnaður mun hafa valdið að þær eru hvorki fleiri né lengri. Skráð eru 70 tímarit sem efni er tekið úr; 1 Bibliography of Old Norse-Icelandic Studies 1963. Munksgaard, Copenhagen 1964. 302
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.