Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Síða 39
Munnhörpuleikarinn
Tommi sest upp: „Ja ...,“ segir hann í símann. „Ég er tungumála-
kennari."
Grátur þeirrar freknóttu: „Stelari...!“
Kvenröddin: „O ég skil... Nú er sumar, gleðjist gumar...“ Hún
hlær: „Hvaða tungumál?“
Sú freknótta úti: „Ég klaga þig fyrir Guðmundi skipherra. Hann skýt-
ur í þig fastaskoti!"
Tommi í símann: „Ensku þýsku frönsku.“
Kvenröddin: „Frönsku! ... En gaman... Bon joúr, sagði býflugan,
það er franska og þýðir góðan daginn. Þetta stendur í Dísu ljós-
álfi!“ Hún hlær. „Ókei, komið klukkan 4, ég fer á pallinn klukk-
an 5 ... Kvenfólk er ófáanlegt að sitja börn síðan rauðsokkar
fundu upp kalleðli þess ... og mamma á spítala, lærbrotin.
... Ókei?“
10 Tommi rís á hnén, stamar: „Og ... og hvert?“
Konan: „Barðavog 8, aðra hæð. Klukkan 4.“
Tommi: „Barðahlíð 8.“
Konan: „Neineinei: Barðavog! kl. 4. Bon joúr.“ Hlátur.
11 Enn grenjar sú freknótta úti. Tommi staulast á fætur, leggur gaffal
á og dustar fötin. Telpan volar: „Komdu með peninginn minn,
stelari! ... Ég læt Guðmund skipherra taka þig... Ég skal! ...
Ég skal! ... Hann er með klippur!“
Tommi setur upp derhúfu í makindum, lagar þverslaufu o. s. frv.
Hann festir þráðinn með króki við barminn á vestisvasanum, hring-
snýr peningi um fingur sér borginmannlegur: þráðurinn vefst um
fingurinn ... Sú freknótta hrín. Tommi stingur peningnum í vestis-
vasann tveim fingrum.
SEX
1 Tommi gengur inn rökkvaðan gang. Hann stansar við hurð,
tekur lykil úr hægra vestisvasa: lykillinn er festur með keðju við
vestistölu. Tommi bograr við skráargatið. Það marrar í hjörunum
þegar hann lýkur upp.
341