Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Blaðsíða 84

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Blaðsíða 84
Tímarit Máls og menningar ar voru kynntar ýmsum skólamönnum. Allt það sem hér verður rakið úr tillögunum er tekið úr gögnum, sem ráðuneytið lagði fram á fundinum, eða haft eftir fundarmönnum. Meginefni tillagnanna, nokkuð saman- dregið, er sem hér segir: 1. Ollum sem lokið hafa grunnskólanámi skal standa til boða eins til fjögurra ára nám, hvort sem stefnt er að sérhæfingu til starfs, almennu námi eða undirbúningi til náms á háskólastigi. Leitast skal við að hafa góða menntunaraðstöðu fyrir alla, hvar sem þeir eru búsettir á landinu. 2. Framhaldsskólinn skal skipulagður sem samræmd heild, en greinast í 8 megin-námssvið, sem hvert um sig greinist í námsbrautir. Nám á hverri námsbraut miðar að almennri menntun og/eða sérhæfingu til starfs eftir því hvernig námseiningum er raðað saman. Námslok geta orðið í námi eftir eitt, tvö og þrjú eða fjögur ár eftir því að hvaða marki er stefnt. Námið skal skipulagt þannig að unnt sé að bæta við námseiningum ef einstaklingur kýs síðar að auka við menntun sína. 3. Nám í framhaldsskóla skal skipulagt í námseiningum þar sem ein kennslustund á viku í eitt skólaár, eða tvær á einni önn, er lögð til grund- vallar. 4. Gefnar skulu út námsskrár og skulu þær marka meginstefnu í námi og þjálfun nemenda hvort heldur námið fer allt fram innan skólastofunn- ar eða að hluta til úti á vinnustöðum. 4. Námsskrár skulu kveða á um samræmingu náms í sömu námsgrein á mismunandi námsbrautum, en tryggja auk þess nauðsynlega aðgreiningu í námi miðað við sérhæfingu til starfa úti í atvinnulífinu. 5. Skipan námsbrauta á skólastofnanir skal haga með tilliti til aðstæðna og koma eftirtaldir kostir til greina: Mismunandi brautir innan sömu stofn- unar, stjórnunarlega tengdar brautir í aðskildum stofnunum eða stakar brautir í sérgreindum stofnunum. Þar sem nemendafjöldi og önnur skilyrði leyfa skal leitast við að sameina mismunandi námssvið eða brautir í einni skólastofnun. Stefnt skal að því að í hverjum landshluta verði eins fjöl- breytilegt val námsbrauta og við verður komið. Auk skóla geta fyrirtæki og skólaverkstæði verið námsstaðir. 6. Miða skal við að sama meginregla gildi um stofn- og rekstrarkostnað alls náms á framhaldsskólastigi sem kostað er af almannafé. 7. Sett verði heildarlöggjöf um samræmdan framhaldsskóla og reglu- gerðir um einstaka námsbrautir og stofnanir eftir því sem nauðsynlegt kann að reynast. 386
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.