Tímarit Máls og menningar - 01.12.1976, Page 44
Tímarit Máls og menningar
Þrumuröddin: „Vei yður, þér skriftlærðir og Farísear, þér hræsnar-
<<
ar...
6 Tommi er að róta í skápnum. Hann rís hægt upp og lítur í átt að
veggnum. Lamandi undrun.
Þrumuröddin: „... líkir eruð þér kölkuðum gröfum framliðinna...“
Tommi læðist á tánum að gægjugatinu með skóburstann í hendinni.
Lyftir frá speldi.
7 A hvolfdum fjalakassa stendur alskeggjaði maðurinn buxnalaus í síðri
skyrm og reiðir upp biblíuna: „... sem að utanverðu eru að sönnu
fallegar útlits, en innan eru þær fullar með dauðra manna bein og
alls kyns óhreinindi.“
8 Litlagrönn jórtrar: „Ertu hingað kominn til að predíka?“
9 Alskeggjaði maðurinn leggur biblíuna á hjartastað.
Klökkur: „Jerúsalem, Jerúsalem, þú sem líflætur spámennina og grýtir
þá sem til þín eru sendir ...“
10 Litlagrönn ýtir til hliðar sænginni og leggst ólundarleg.
„... hversu oft hef ég viljað samansafna börnum þínum, eins og
hænan safnar ungum sínum undir vængi sér...“
Litlagrönn réttir fram lófann: „Peningana!“
11 Tommi lokar gægjugatinu. Hann æðir um gólf með skóburstann í
hendinni. Hægra megin borðsins stansar hann: þar hangir spegill.
Hann skoðar andlit sitt, lyftir burstanum og strýkur hár frá enni.
Svartar rendur við hársvörðinn. Tommi lítur á burstann og fleygir
bak við sig. Skellur.
12 Guggið andlit Tomma í speglinum. Kippir fara um augabrýnnar og
skeggið.
Þrumuröddin: „Þér blindir leiðsögumenn, sem frásíið fluguna, en
svelgið úlfaldann."
Tommi þýtur að gægjugatinu.
13 Alskeggjaði maðurinn situr á stokknum hjá Litlugrönn. Hann strýkur
hár hennar. Hún tyggur aðgerðalaus. Hann segir: „Bið forláts mín
eðla: leikarar þurfa að hreysta sig!“
Litlagrönn rekur upp lófann: „Peningana!“
X
346