Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Blaðsíða 10

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Blaðsíða 10
Tímarit Máls og menningar Ég er sammála Magnúsi Kjartanssyni að driffjöður Rauðra penna og síðar MM hafi verið sú vakning sem fylgdi í kjölfar fullveldisins. Augljóst að sjálf- stæðisbaráttan og sá ávöxtur sem hún bar með fullveldinu 1918 hefur hrist upp í öllu þjóðlífinu og valdið hræringum sem gætti lengi. Við kunnum utan- bókar söguna um þjóðina sem endurfæddist í eigin landi, sameiginlega sjálf- stæðishugsjón og „í hverju úngu íslensku brjósti ríkir grunur þess að mikið sé í vændum“, eins og einn af skárri höfundum okkar orðaði það. En sjálfstæðisbaráttan, fullveldið og síðar lýðveldisstofnunin var bara litla tannhjólið í gangverki MM. Kristinn E. Andrésson rekur sjálfur upptök Máls og menningar í gegnum Rauða penna og Félag byltingarsinnaðra rithöfunda til starfsemi Sovétvinafélagsins. (Sbr. Enginn er eyland, bls. 42). Hinn „sigrandi sósíalismi“ Sovétríkjanna og boðun hans á íslandi var stóra tannhjólið í gang- verki MM. Ég held að það sé erfitt að fá botn í starfsemi MM án þess að hafa bœði þessi fyrirbæri í huga og hvernig þau þróuðust. En hvað gerir Magnús? Hann styttir sér leið gegnum mikilmennakenninguna og segir: „Menn eins og Krist- inn E. Andrésson fæðast ekki oft hjá smáþjóð eins og íslendingum og því urðu umskipti á högum Máls og menningar þegar hann lét af forustu ..." (Bls. 117 og 118, leturbreyting mín). Hér er reyndar komið ágætt sýnishorn af þeirri persónudýrkun sem hefur verið viðloðandi hreyfingu íslenskra sósíalista: þessi sjálfvirka hnébeygja frammi fyrir helgimyndum Kristins, Jespers og Jónatans. Ekkert er sjálfsagðara en per- sónudýrkun í röðum hægrimanna, þeirra rórill er jú „einstaklingurinn“ og upp- lagt að bæta úr málefnaskorti með dýrkun á föllnum forystumönnum. En hvernig í ósköpunum getur gagnrýnislaus persónudýrkun samrýmst skoðunar- máta sameignarmanna? Stundum er eins og verið sé að byrja ritun nýs guð- spjalls: „Það var þessi hópur (íslenskir framsæknir menntamenn, innskot PG) sem myndaði jarðveg þess, að snillingurinn og atorkumaðurinn Halldór Laxness varð einn fremsti höfundur gervallra heimsbókmenntanna . . .“ (Bls. 116). Er ekki lágmark, að í stað þess að hnjóta um mikilmennin eins og rótar- hnyðjur í fjöruborði sögunnar, sé reynt að taka með í reikninginn þær hrær- ingar mannhafsins sem skoluðu þeim á land? Liggur ekki í augum uppi að umskipti hafa orðið á högum MM vegna þess að uppspretturnar sem nærðu hana eru þornaðar, eða svo við höldum áfram með driffjöðrina: hún slitnaði. Jafnvel mikilmenni á borð við KEA hefði ekki getað trekkt upp ónýtt sigurverk (heimsóknir og símtöl hefðu ekki dugað þar til, starfshópar ekki heldur). Það leiðir ekki til neins að kvarta undan því að menn séu ekki nógu „já- kvæðir" eða panta handa mönnum „eld í hjartað“ og allra síst að kenna Sigfúsi Daðasyni um að MM er ekki á eins glæstri siglingu og fyrir syndafall. Við 232
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.