Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Blaðsíða 35

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Blaðsíða 35
Viðtal við Wolf Biermann kannski að hugsa sitt mál eftir þessar ofurlitlu sönnu sögur af daglegum störfum á ritstjórn Springer-blaðs. Wallraff: Flestir þeirra funda sem ég hef haldið um þetta starf mitt hafa verið á vegum verkalýðssambanda. Og þar voru „Bild“-Iesendur líka staddir, oft 20% fundarmanna, oft fleiri, mjög venjulegir „Bild“-neytend- ur sem alltaf grípa aftur til blaðsins af því þeir eru örþreyttir. Ég þekki þetta sjálfur. Þetta er ekki meðvituð hegðun, heldur vani. Afstaða „Bild“- lesanda til blaðsins er sú sama og afstaða eimrlyfjasjúklings til eitursins. Hann veit að það gerir honum illt, að það verður logið að honum, ef til vill veit hann jafnvel að þegar til lengdar lætur ruglar það hann, en samt grípur hann alltaf aftur til þess eins og ósjálfrátt. Menn mega ekki gera sér grein fyrir inntaki þess sem þar er komið á framfæri, það seytlar inn í undirvitundina. Biermann: Ég held meira að segja að þessi gagnsæju æsingaskrif „Bild- Zeitung“ séu sérstaklega háskaleg, því að lesendur verða auðveldlega að bráð þeirri barnalegu blekkingu að þeir sjái í gegnum allt og þykir þeir sjálfir vera einkar gáfaðir, en eru samt heimskastir þegar allt kemur til alls. En þessar raunverulegu uppskriftir úr eiturbraseldhúsinu, sem þú hefur ljóstrað upp, hjálpa ef til vill mörgum sem halda að þeir geti melt þessar trakteringar án þess að það skaði þá. Wallraff: Ég hef fengið mjög margar yfirlýsingar frá vinnustöðum, undirskrifaðar af verkafólki, trúnaðarmönnum, framleiðslustjórnum, þar sem hvatt er til að menn hætti að kaupa „Bild-Zeitung“. Bókin er allt öðru vísi lesin á vinnustöðum en meðal menntamanna þar sem hún hafnar aðeins uppi í hillu. (Margir bókasafnarar kaupa jafnvel eintak af hverri útgáfu til að bera saman breytingarnar).1 Meðal verkamanna gengur slík bók oft mann frá manni, þá er hún í raunverulegri notkun. Og þar með er Springer aftur kominn fram í sviðsljósið. Hann hafði þó að mestu sest í helgan stein eftir mótmælaaðgerðirnar gegn honum 1967—8, hann gat veitt sér þann munað að snúa sér frá heiminum og helga sig dulspeki á meðan fyrirtækið gekk af sjálfu sér. Umfram allt pólitíska fyrirtækið. Springer var hafinn yfir allar árásir og aðfinnslur. Stjórnmálamennirnir lutu í duftið fyrir honum. Schmidt kanslari sagði t. d. að það væri pólitískt sjálfsmorð að eiga í útistöðum við „Bild-Zeitung“. Biermann: Var hann að gera að gamni sínu? Wallraff: Nei, þetta voru ráðleggingar til flokksbræðra hans. A hinn 1 Springer hefur tekist í málaferlunum að saxa talsvert á texta bókarinnar. — Þýð. 253
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.