Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Page 45

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Page 45
Sovétkommúnisminn 10 árum eftir „Vorið í Prag' til kommúnískra endurbóta innan Austur-Evrópu verið útilokaðir um ald- ur og ævi. En sú ályktun er fremur sprottin af persónulegum vonbrigðum og óþolinmæði en hlutlægri greiningu. Nú þegar má t. d. greina viss merki þess í Póllandi að með vaxandi samfélagslegri kreppu muni umbótastefna sjöunda áratugarins skjóta upp kollinum á ný, þar sem hún felur í sér einu úrræðin sem ekki leiða til öngþveitis. Líkur benda til að umbóta- kommúnisminn verði einnig framvegis ófrávíkjanleg leiðarstjarna breyt- inga í lýðræðisátt. En í Austur-Evrópu líður tíminn hægt og endurreisn umbótakommúnismans getur látið bíða eftir sér. Ný pólitísk menning í öðru lagi eru gagnrýnendur stjórnarfarsins ekki lengur teknir af lífi, eins og gerðist á tímum Stalíns. Þeir eru ennþá ofsóttir, en allsherjar ógnar- veldi af stalínskri gerð er ekki lengur fyrir hendi. Nú á tímum geta gagn- rýnendur lifað af og haldið áfram andstöðu sinni og barátm — ef þeir hafa hugrekki til. Af þessu leiðir að smám saman myndast veik en sam- felld pólitísk menning samhliða sem er virkur áhrifavaldur — og valdhafar neyðast til að venjast því að umbera hana. Ennfremur útheimtir slökunar- og samvinnustefnan að sovétkommúnísk- ar stjórnir hætti, a. m. k. út á við, að líta á mannréttindi sem „borgara- legar eftirhreytur". Þeir hafa meira að segja fallist á að lögfesta alþjóð- lega sáttmála um mannréttindi — og þar með er krafan um að þau séu í heiðri höfð ekki lengur saknæm. Þannig hefur opnast víglína þar sem stjórnarandstaðan gat hafið árangursríka sókn. Sterkust hefur hún hingað til verið í Póllandi og Tékkóslóvakíu, en hennar hefur einnig gætt í hinum löndunum. Baráttan hefur verið byggð upp á grundvelli hollustu og lög- hlýðni, gagnrýnin beinist ekki gegn ríkjandi þjóðfélagskerfi, og ekki er heldur hvatt til niðurrifsstarfsemi. Að vísu hafa stjórnvöld einnig að þessu sinni gripið til kúgunaraðgerða, en hins vegar hafa þau, t. d. í Póllandi, veitt töluvert miklar tilslakanir, og kannski er von á fleirum. Enda þótt þeir viðurkenni ekki friðsamlegar rökræður við þá sem gagnrýna þá, neyð- ast þeir samt til að „rökræða“ í opinberum málflutningi sínum. Framtíðin ein mun skera úr um hvort baráttumenn mannréttinda verða færir um að hafa taumhald á tilfinningum sínum, sýna hófsemi og þolin- mæði, láta ekki egna sig til að láta hollustuna lönd og leið. Þeir verða að 263
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.