Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Page 108

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1978, Page 108
Umsagnir um bækur DRAUMUR UM VERULEIKA íslenskar sögur um og eftir konur. Helga Kress valdi sögurnar og sá um útgáfuna. Mál og menning, 1977. „Allt er þetta tómstundavinna höfunda, sem flestar eru húsmæður fyrst og fremst og oft jafnframt forsjármenn heimila og barna. Ritstörfin koma því varla fyrr en í þriðja sæti, eða hver veit hvað, enda hafa konur löngum tamið sér það að vinna sitt verkið með hvorri hendi." Þetta segir Halldóra B. Björnsson í eftir- mála með Pennaslóðum, smásagnasafni sem kom út 1959 með sögum eftir ís- lenskar konur. Helga Kress tekur upp þráðinn í formála sínum að Draumi um veruleika og segir: „Það er því engin furða þótt margar konur með hæfileika og löngun til ritstarfa hafi látið undan síga. Kjör þeirra og jafnaldranna af hinu kyninu hafa alltaf verið og eru enn gjörólík. Það hefur aldrei verið eetlast til þess af konum að þcer yrðu rit- höfundar." En náttúran verður seint lamin með lurk, um það vitnar ekki síst sögusafnið sem hér um ræðir. Formáli Helgu að Draumi um veruleika er ákaflega þarfur, og má raunar líta á hann sem vísi að bók- menntasögu kvenna. Hún rekur þar erfiðleika kvenna á að gerast rithöfund- ar með mörgum lýsandi dæmum, og einu dæmi mætti bæta við úr Baráttunni um brauðið eftir Tryggva Emilsson. Hann segir þar (bls. 26—7) frá mág- konu sinni, Elínu, sem var náttúruð fyr- ir andleg störf en fékk aldrei að njóta ávaxta af þeirri náttúru sinni: „Aldrei sat hún við borð en skrifaði á hnjám sér úti sem inni og fól lausum blöðum allar sínar viðkvæmu hugsanir og þrár. Aldrei fannst henni nógu vel gert, en gaf sér ekki tóm til að umskrifa eitt eða neitt, hún geymdi lausu blöðin sín undir koddanum eða þá í handraðanum í kof- fortinu og ætlaði sér að vinna úr þeim seinna, en það seinna kom aldrei.“ í framhaldi af frásögn Helgu af erfið- leikum kvenna á að skrifa lýsir hún bók- menntastofnuninni og því hvernig hún tekur við ritverkum sem svona mikið er haft fyrir. Bókmenntastofnunin, útgef- endur, gagnrýnendur, höfundar kennslu- bóka og fleiri hafa farið furðulega að ráði sínu gagnvart kvenrithöfundum. Dæmi Helgu eru mörg og geta reitt sljó- asta lesanda til reiði. Hún flettir ofan af tvískinnungi og hræsni bókmennta- manna eins og Guðmundar Finnboga- sonar, Sigurðar Nordals og ýmissa yngri manna, auk þess sem hún bendir á það fullkomna yfirlæti sem karlar sýndu konum iðulega í sambandi við ritstörf. Mjög mikinn fróðleik er að finna í formála Helgu, upplýsingar um kven- rithöfunda og merk ártöl í bókmennta- sögu þeirra. Hér hefur Anna Sigurðar- dóttir á Kvennasögusafni Islands vafa- 326
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.