Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Page 87

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1979, Page 87
Dymbilvaka, skáldið í vitanum formfjötrum fortíðarinnar). En skáldið virðist einnig sjá sjálfan sig í gervi vitans (IV,25) þannig að við gætum sagt að bann væri vitinn, eða þá skáld- skapur hans, eða Dymbilvaka sér í lagi. Þá hefðum við hér kvæði sem fjallaði um sjálft sig, sem er ekki svo vitlaus hugmynd. Þó að við leiðum þessa möguleika hjá okkur er ljóst að vitinn er ná- tengdur öðrum hlutum kvæðisins. Augljósust tenging er stef ljóssins. í lok I. hluta var það skip á sjónum sem leitaði skáldsins með Ijósgeisla sínum en náði ekki sambandi, skáldið gat ekki svarað. Nú sendir hann geisla sína út í allar áttir og krefst hlýðni. Það er einkum þetta sem gerir það að verkum að IV. hluti virðist eins og lausn á vandamálum fyrsta hlutans. Það er dæmigert fyrir verk Hannesar að vitinn í mestum hluta þessa kafla er greinilega viti, hvert sem tákngildi hans annars er. Myndir úr náttúrunni eru yfirgnæfandi. Allar línur nema 21—24 má auðveldlega túlka á sviði umhverfislýsingar, lýsingar á umhverfi hins raunverulega vita (25. lína er e. t. v. margræð, en hún á jafnt við hið raunverulega umhverfi fyrir því). Vitanum er valinn staður, eins og yfirleitt tíðkast, á mörkum lands og sjávar. Hrjóstrugt landið er í þessu tilfelli auðn og dauðinn er sjórinn, Ijónið, stormurinn. 21.—24. lína eru útleggingar á hugmyndinni að „sjá ljósið“, „veita Ijósi“. Skáldið, sem rennur saman við vitann í 25. línu, talar hér til farmanns sem hefur villst í dimmviðrunum (önnur óviss 2. persóna, e.t.v. er hér átt við lesandann sjálfan). „Undir kulnandi sólum vizkunnar“ (IV,23) bendir til þess að skáldið ákalli mannkynið með skipandi geisla- mætti sínum, hina döpru og vonsviknu, frá svikulu Ijósi „visku“ eða mennta og bjóði sín eigin undur. Það er auk þess athyglisvert að þessum línum svip- ar til spádómsorða biblíunnar; hliðskipaðar spurningar sem eru svo dæmigerðar fyrir hebreskan skáldskap, þar sem hin seinni er lengri og ber þyngri áherslu. Hugmyndin að baki þessu er spámaður í eyðimörkinni, sá sem miðlar ljósi. Síðustu fimm línur vitakaflans (IV,26—30) eru meðal þess áhrifaríkasta í öllu kvæðinu. Þau eiga fullkomlega við ásýnd vitans, séða gegnum storm og fjúkandi löður, og jafnframt við mannlegan fulltrúa hans, skáld- ið sem er næstum ófær um að afstýra slysum, næstum lamaður af ótta og tilhugsun um það sem gæti gerst eða hefur gerst. Þessar línur bregða nýju og óvæntu ljósi yfir þá lýsingu valds og máttar sem á undan fór. Gagnger skil verða milli 30. og 31. línu IV. hluta, skarpari skil er varla annars staðar að finna í kvæðinu. Hér eru annaðhvort komnir breyttir tím- ar eða skyndileg afstöðubreyting því vígreifur andi vitakaflans er hér leystur 77
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.