Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Blaðsíða 33

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Blaðsíða 33
I Babýlon við vötnin ströng Mér var kennt að fara með sálma og töfraþulur — mér var kennt að stöðva blóðrás úr sári, og margir leyndardómar voru mér opinberaðir. Prest- ur verður að kunna skil á mörgum leyndardómum — svo mælti faðir minn. Veiðimennirnir mega gjarnan trúa því að vér fáum öllu framgengt með sálmum og töfraþulum — það skaðar þá eigi. Mér var kennt að lesa í göml- um bókum og rita hið forna letur — það var erfitt og seinlegt. Þekking mín gerði mig sælan - hún brann eins og eldur í hjartanu. Ekkert var mér jafn- kært og heyra sagt frá fyrri tímum og hlusta á sögur um guðina. Ég spurði sjálfan mig fjölda spurninga sem ég kunni engin svör við, en eigi að síður þótti mér gott að spyrja. Um nætur lá ég andvaka og hlustaði á storminn - mér þótti sem væri hann rödd guðanna á flugi þeirra um geiminn. Vér erum eigi fákunnandi eins og skógarbúarnir - konur vorar kemba ull og spinna, prestar vorir klæðast hvítum skrúða. Vér gröfum eigi rætur oss til matar, vér höfum eigi gleymt fornum ritningum þótt ærið séu þær torskildar. En þekkingin brann í mér og einnig þekkingarskorturinn — ég þráði að vita meira. Þegar ég loks var maður vaxinn kom ég að máli við föður minn og sagði: „Nú er tímabært að för mín hefjist. Veit þú mér samþykki þitt.“ Hann virti mig fyrir sér lengi, strauk skeggið og mælti síðan: „Já, það er tímabært.“ Um kvöldið gekk ég í hús hinna prestvígðu, bað um hreins- un og var hún mér veitt. Holdið sveið, en andinn var harður sem tinna. Faðir minn yfirheyrði mig sjálfur um drauma mína. Hann bauð mér að horfa inn í reykinn sem lagði upp af eldinum - ég horfði og sagði hvað ég sá. Það var hið sama sem ég ætíð hef séð — fljót, og handan við fljótið mikill dauðareitur þar sem guðirnir voru á ferli. Ég hef oft hugsað um það. Augu hans voru hvöss meðan ég lýsti því sem ég sá — nú var hann eigi lengur faðir minn, heldur prestur. Hann mælti: „Þetta er máttugur draumur.“ „Það er minn draumur,“ sagði ég og reykurinn liðaðist um höfuð mér og það varð létt sem fis. í forhýsinu var verið að syngja stjörnusönginn og raddirnar hljómuðu í eyrum mér líkt og flugnasuð. Hann innti mig eftir hvernig guðirnir væru til fara og ég lýsti fyrir honum klæðnaði þeirra. Vér vitum af bókum hvernig þeir voru búnir, en ég sá þá lifandi fyrir mér. Þegar ég hafði lokið máli mínu fleygði hann prikunum þrisvar og gætti að hvernig þau komu niður. „Þetta er næsta máttugur draumur,“ mælti hann. „Svo kann að fara að hann reynist þér ofjarl." 279
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.