Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Blaðsíða 115

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Blaðsíða 115
eða sæti Björns Brandssonar, a.m.k. um tíma til reynslu? Spyr sá sem ekki veit, en varla hefði vont versnað við það því mér finnst lýsing Brands þannig að þar leynist undir niðri hæfileikamaður. „Góðu“ persónurnar eru til muna færri en þær „vondu“ ef svo má segja, kannski ætti hér fremur að tala um jákvæðar og neikvæðar persónur. Krist- ín, vélritunarstúlka og samstarfsmaður Gunnars á sjónvarpinu, er alger and- stæða þess sem við sjáum í fari flestra í fjölskyldu Gunnars eða hans sjálfs — og Solla systir hans fellur ekki í fjöl- skyldukramið, og í lokin virðist hún vera að hefja einhvers konar uppreisn með því m.a. að flytja frá foreldrum sínum. Gaman hefði verið að fá að sjá meira til Kristínar í þessari sögu en lík- lega er lítil fyrirferð hennar í sögunni í samræmi við það að Gunnar, sem af og til reynir að ná sambandi við hana, hef- ur ekki erindi sem erfiði. Það er kannski ekki nema von því að á þeim eina stað í sögunni sem þau hefðu getað unnið saman í sambandi við viðtal Kristínar við unga verkakonu þá hleypur yfir- stéttarafsprengið Gunnar Hansson í baklás. Frásagnarmáti þessarar sögu virðist vel til fundinn, enda sjálfsagt erfitt jafnvel þrjátíu árum eftir útkomu At- ómstöðvarinnar að skrifa fyrsm persónu frásögn í skáldsögu af þessu taginu. Reyndar hafa menn ekki orðið á eitt sáttir um ágæti frásagnaraðferðarinnar sem beitt er í Atómstöðinni, en það er önnur saga. Ólafur Haukur beitir fyrir sig þriðju persónu frásögn og sögumað- urinn Ólafur Haukur, ef svo má segja, fer oft mjög nálægt því sem kallað hef- ur verið innri monolog eða eintal sál- arinnar. A þennan máta tekst það sem vafalaust er ætlast til: Gunnar Hansson TJmsagnir um bcekur verður ansi nákominn lesandanum svo að hann sér margt með augum aðalper- sónunnar. Eins og áður er vikið að er Vatn á myllu kölska opin í endann: Ekki er hægt að bóka það að Gunnar Hansson taki upp fyrri lifnaðarhætti. Að mínu áliti er þetta einn höfuðkosmr sögunn- ar og væri vissulega mikil áhætta fyrir höfund að halda áfram með sögu Gunn- ars Hanssonar enda má Ólafur Haukur vel við þessa bók una. Atli Rafn Kristinsson. ELDHÚSMELLUR Því er ekki að neita að er út kom s.l. haust skáldsaga Guðlaugs Arasonar, Eldhúsmellur1), varð töluverður kvell- ur. Sagan var verðlaunuð haustið 1978 í skáldsagnasamkeppni þeirri sem Mál og menning efndi til 1977. Ekki eru þó tök á því fyrir undirritaðan að fjalla hér um þessa verðlaunaveitingu sakir ókunnugleika um aðrar skáldsögur sem til álita komu í keppninni. Aðeins skal það látið í Ijós að samkeppni af þessu taginu hlýmr að hvetja a.m.k. einhverja rithöfunda til dáða og á þann hátt leiða gott af sér þó að á hinn bóginn sé það ljóst að ekki verði til skáld fyrir til- stilli slíkrar keppni. Eldhúsmellur er saga um misrétti — og þá um leið jafnréttissaga að boðskap. Sögusviðið er á Seyðisfirði en um leið er ljóst að innifalin er er sumpart lýsing á öllum öðrum sjávarbæjum á Islandi skulum við segja, og aðalpersónan, Anna !) Guðlaugur Arason: Eldhúsmellur, skáld- saga, Mál og menning, Reykjavík, 1978. 361
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.