Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Page 121
eftir Mozart af kasettu. Sif stendur sig betur, samt er líf hennar í rúst eftir baráttuna. Þau hjón kæmu bæði til með að kasta af sér skuggum í Sólarlandinu, framtíðarlandinu, ef þau færu þangað (66). Vonin í verkinu er bundin við Hönnu, dótturina. Henni hlýmr að tak- ast að komast til sólarlandsins. TalaZ við sjálfan sig Því fer fjarri að stíll þessa verks sé af því taginu þegar hljóðnema er haldið að vimm fólks og skrifað niður allt stam og hikst sem það gefur frá sér. Samtölin eru oftast lipur og leikandi, en þau eru samin. Þau eru heldur ekki venjuleg samtöl, þau eru hugarsmíð og allir vita hvað maður er orðheppinn þegar maður talar við sjálfan sig. Mál- far allra persóna er málfar Hans, þær segja það sem hann leggur þeim í munn. Rökrefjar eru manninum að skapi og oft er hann snjali: „Einn bjór, hór- kona, kórkona, fórkona, sórkona að búa í blíðu og stríðu!“ (15) Smndum er hann meinfyndinn: Sif: Mér langar í bjór. Hann: Mig langar í bjór. Sif: Fáðu þér þá. Hann: Mig langar! Ekki mér! Sif: Reyndu að ákveða þig mað- ur. (22) Stundum er hann meinfýsinn: Sif: Hann hefur mjög takmarkað af því sem hann, hér og nú, kallar mannlega náttúru. Hann: Við eigum þó eina dóttur! Umsagnir um bækur Sif: Iss, það gemr öllum orðið sáðfall. (32—3) A öðrum stað er textinn smndum há- tíðlegur, það tilheyrir eintalinu, og stundum ljóðrænn (t.d. 23—4) og mjög fallegur. Líkingar á hann til: „Afengur eins og þú varst. Nú ert þú orðinn eins og bjór sem hefur staðið lengi í opinni flösku. Bragðlaus, daufur, vill þig eng- inn.“ (20) Textinn er óvenjulegur og vel unn- inn lengst af. Það er ekki fyrr en í lok- in sem innihald verksins verður helsti mikið einkamál til þess að meining komist vel til skila, og jafnvel þá er textinn oft fallegur þótt óljós sé: Hann: Sjáðu til, einn dag rís ég upp, fer í skóna mína, geng út eins og þið, en læt ekki aftur hurð. Dyrnar verða opn- ar til minnis. Hanna: Til minnis? Hann: Til minnis um hamingju sem fór húsavillt. Settist upp á vitlaust fólk. Leiddist, mis- tókst, fór. (63) Glerhúsið er skáldverk sem á erindi til margra annarra en þeirra sem það lýsir beinlínis. Það er fjarri því að það takmarki sig við vandamál alkóhólista, þvert á móti reynir það að takast á við vanda sem allir þurfa að taka afstöðu til: Nýtt gildismat sem fylgir frelsis- baráttu kvenna, upplausn hjó.nabands og kjarnafjölskyldu í nútímasamfélagi. í því róti er drykkjusýkin ekki orsök eins cg oft er látið liggja að — heldur afleiðing. Silja Aðalsteinsdóttir. 367
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.