Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 5

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 5
Þo'ra Vigfúsdóttir ófriðsömum orðum. Á þeim átakatímum um þjóðfélagsmál hérlendis sem einkenndu sambúðarár þeirra Þóru framan af voru mörg ófriðsöm orð mælt og rituð, en Þóra var manni sínum sú sóley er varði hann öllu grandi. I gömlum ævintýrum er frá því sagt að tröll hafi þann leik uppi að kasta milli sín fjöreggi sínu, og þau eru e. t. v. válegust tímanna tákn að sjá þessi gömlu ævintýr verða að veruleik fyrir augum okkar. I formáls- orðum að ljóðabókinni „Svo frjáls vertu móðir“, sem út kom á 10 ára afmæli lýðveldisins talar Kristinn um þau örlög þjóðar er verði ofraun að skýra nema leitað sé á vit gamalla ævintýra. Honum er myrkt fyrir sjónum, en sú er löngum raun þeirra er eiga sér dýra drauma, helgar sýnir, að sjá þær fótum troðnar. En hvaðan kom þessu fólki eldmóður hugsjóna og alþjóðahyggju, hinn forni draumur um bræðralag manna íklæddur nýjum búningi? E. t. v. frá þeim frelsisanda er gagntók þjóð okkar af ritum Fjölnismanna, og e. t. v. átti hann sér enn dýpri rætur. Að baki öllum vonum okkar manna um frelsi og jafnrétti blundar hin forna djúpa þrá eftir glataðri paradís — allar þjóðfélagshræringar eru endurómur frá þeim trúarlega bakgrunni, þar sem „lífsvonin eina var samtvinnuð krossinum rauðum“. I bernsku hafði Þóra lært gamalt vers — bænarmál er speglar hugskot þess fólks sem er handan allra hugsjóna og drauma er fá ræst hérna megin grafar, og þegar fór að kvelda og húma að, varð henni þetta gamla vers æ hugleiknara og þess bænarmál. Maríusonur mér er kalt, mjöllina af skjánum taktu, yfir mér einnig vaktu. Lífið bæði og lánið er valt, ljós og skuggi vega salt, við lágan sess á ljóstýrunni haltu. Þóra Sigurborg Vigfúsdóttir eins og hún hét fullu nafni var fædd á Vatnsenda við Reykjavík 28. nóvember 1894 og var því á 86. aldursári þegar hún lést 28. fyrra mánaðar. Foreldrar hennar voru Vigfús Olafsson og Sólborg Hansdóttir — fátæk að öðru en börnum, — Þóra var yngst 131
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.