Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 10
Ádrepur
Bjamfríður Leósdóttir
Stefnumál á Alþýðusambandsþingi
Nú líður senn að því að 34. þing Alþýðusambands íslands verði haldið. Þá er
ekki úr vegi að líta til baka og huga að því á hvern hárt verkalýðshreyfingin
hefur nýtt þennan tíma frá síðasta þingi til faglegrar og pólitískrar baráttu.
Arið 1976, þegar síðasta þing Alþýðusambandsins var háð, hafði ríkisstjórn
Geirs Hallgrímssonar setið að völdum rúm tvö ár. Á þeim tima hafði kaup-
máttur launa rýrnað verulega, þannig að kaupið hefði þurft að hækka um 33%
miðað við mars 1974 þegar samningar voru nýgerðir, og kaup verkakvenna
hafði rýrnað ennþá meira. Félagslegar umbætur höfðu líka verið skornar niður á
þessu tímabili. Þar bar hæst breytingu á lögum um hlutdeild ríkissjóðs í stofnun
og rekstri dagvistunarstofnana þar sem þátttaka ríkisins í rekstrarkostnaði
dagheimila og elliheimila var felld niður og framlög til byggingar slíkra stofn-
ana voru stórlega skert.
í miðstjórn Alþýðusambandsins áttu þá sæti tveir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, þeir Pétur Sigurðsson og Guðmundur H. Garðarsson, sem á Alþingi
fylltu þann flokk sem stóð að verulegri skerðingu á kaupi og kjörum verkafólks.
Á ASI þinginu reis upp andófshópur innan verkalýðshreyfmgarinnar, sem
síðan var kallaður „Órólega deildin“. Markmið hennar var að reyna að rjúfa
þessa samtryggingu stjórnmálaflokkanna innan Alþýðusambandsins og afmá
þann blett á verkalýðshreyfingunni að ala við brjóst sér höfuðstéttarandstæð-
inginn. Allur málatilbúnaður þessa hóps beindist að þvi að ná samstöðu í
höfuðmálum verkalýðshreyfingarinnar, sem hlutu að vera gegn vilja þessara
þingmanna Sjálfstæðisflokksins innan miðstjórnar Alþýðusambandsins. Þessi
barátta var ekki eingöngu háö innan verkalýðshreyfmgarinnar, heldur miklu
fremur innan flokkanna Alþýðubandalags og Alþýðuflokks, þar sem hinir eldri
■og reyndari menn töldu farsælla að halda samtryggingunni áfram, svo að
verkalýðshreyfingin virtist, á yfirborðinu, hafin yfir alla flokkapólitík. Á hinn
bóginn töldum við í órólegu deildinni að það hlyti að vera komið að pólitísku
uppgjöri innan verkalýðshreyfmgarinnar. Á það vildum við reyna. Við bárum
fram tillögu um vítur á ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar vegna árása hennar á
136