Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 32
Tímarit Máls og menningar
haldinn. En þegar það varð ljóst hafði hópurinn dreift 1500 eintökum af
dreifiriti sínu vegna fundarins og átti erfitt með að færa hann neitt til svo takast
mætti að fá verkalýðsforystuna á fundinn. Hópurinn hafði sent sérsamböndum
og einstökum verkalýðsfélögum sérstakt boðsbréf fyrir fundinn. Þegar þessi
staða var komin upp var farið fram á það af starfsmönnum Alþýðusambandsins
við hópinn að fundinum yrði frestað um sólarhring, fram á sunnudag svo
verkalýðsforystunni tækist að mæta. Hópurinn ákvað eftir umræður að fresta
fundinum þó það hefði í för með sér að dreifiritið sem slíkt yrði við það ónýtt og
öll fundarboðunin komin í mola. Það tókst þó ekki betur til en svo að
Verkamannasambandið framlengdi kjaramálaráðstefnu sína fram á sunnudag og
boðaði til hennar á sama tíma og fundurinn var haldinn og var henni lokið um
það leyti sem fundi Baráttuhópsins var að ljúka. Því sáust ekki forystumenn
hinna almennu verkalýðsfélaga á fundinum og engir frá Sjómannasambandinu
heldur. Einstakir menn úr röðum verkalýðsforystunnar létu að vísu sjá sig en
tóku engan þátt í umræðum.
Til að kóróna þetta allt er hér til gamans getið þess að verkalýðsforystan,
réttara sagt Alþýðusambandið, hafði léð máls á því að taka þátt í auknum
auglýsingakostnaði i útvarpi og fjölmiðlum vegna breytts fundartíma. Því var
því sendur reikningur skömmu eftir fundinn þar sem farið var fram á að
Alþýðusambandið greiddi kostnað við útvarpsauglýsingu upp á 22.000 kr. Enn
í dag hefur þessi reikningur ekki verið greiddur og þær skýringar gefnar að
bréfið sem væri með honum væri þannig orðað að það væri ekki hægt að leggja
það fyrir miðstjórn. Við látum því þetta bréf fljóta hér með til gamans.
Svo sem ykkur mun kunnugt hélt Baráttuhópur farandverkafólks opinn um-
ræðufund sunnudaginn 6. janúar í Félagsstofnun stúdenta og var fulltrúum
verkalýðshreyfingarinnar, meðal annars frá ASÍ og VMSÍ, boðið að sitja fundinn.
Þrátt fyrir að fundur þessi væri boðaður með góðum fyrirvara fór svo að VMSI
boðaði til kjaramálaráðstefnu sama dag og á sama tíma. Mæltust fulltrúar
verkalýðshreyfingarinnar til þess að fundi okkar yrði frestað um einn dag svo
forystumenn úr verkalýðshreyfingunni gætu sótt fundinn. Frestuðum við fund-
inum og kostaði það okkur nokkur fjárútlát, meðal annars eyðileggingu dreifirits
í 1500 eintökum og viðbótarauglýsingar í útvarpi og blöðum. Mælumst við til að
ASI greiði meðsenda útvarpsauglýsingu um frestun fundarins að upphæð kr.
22.560.
Ekki hefur enn fundist nein skynsamleg lausn á því innan hópsins hvernig
umorða bæri bréfið svo að miðstjórn ASI gæti sóma síns vegna tekið það fyrir.
158