Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Side 89

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Side 89
,,Von um virðingu fyrir sjálfum mér“ upp tildrög þcss og segir: „En svo eru nú líka til önnur ör, sem ekki sjást með berum augum, og eru þau að vísu ekki á höndunum" (446). En stundum er hann svo yfirtak þurr á manninn andspænis þungum raunum, að lesanda fínnst með ólíkindum: „Móðir mín andaðist þá um veturinn, 12. febrúar 1910, 62 ára gömul. Hún dó úr krabba. Faðir minn andaðist um vorið, 24. maí, 63 ára gamall. Hann dó úr brjóstveiki. Foreldrar mínir voru jarðaðir að Grenivík. Ekki gat ég verið við útför þeirra. 30. júní um sumarið 1910 hrökk Valdimar bróðir minn út af hákarlaskipi við Oddeyrartanga. Hann var 24 ára garnall." (426). Það var kannski ekki nema von að Þórbergi fyndist nóg um þá sparsemi sem hér hefur verið lýst með dæmum. En hann segir í frægum ritdómi sínum: „Allt tíðindalaust í ríki sálarinnar. Engir innri lífsháskar, engar nýjar hugsanir, engin heilabrot um lífsgátuna .. . Allt í lausgopalegu ágripsformi . . (167). En nú bregður svo við, ab \ skáldsögunum er Theódór einatt allt annar maður. Hann, eða persónur hans, verða miklu mælskari um tilfinningamál, um „innri lífsháska“ en hann leyfir sér að vera sjálfur í ábyrgri ævisögu. Það er að vísu nokkur tvíveðrungur í þessum persónum. Ungu mennirnir í Grímu og Utlögum hafa báðir misst kærustur sínar — önnur lést með voveiflegum hætti, hin brást. En þeir hafa lesið um Skarphéðin og Þormóð Kolbrúnarskáld og þeir vita að menn eiga að bera harm sinn í hljóði „bregða sér hvorki við sár né bana“ (Utlagar, 158). Ingveldur heitir fullorðin ráðskona í skáldsögunni Grímu, sem rennir hýru auga til miklu yngri manns, en hún treystir honum til þess „að þú hafir ekki orð á þessu við nokkurn mann, þó að mér yrði það á að vera svo djörf að láta þér tilfinningar mínar í ljós“ (52). Kristín elskar Rafn skipstjóra (skáldsagan Utlagar) en ætlar samt að giftast ungum presti og byltir sér í hugarvíli í sæng sinni: „Ást! Ást! Það voru andvörp, sem liðu frá brjósti hennar út í næturmyrkrið, og henni ofbauð hvað hún, tuttugu og tveggja ára gömul stúlkan, gat verið barnaleg að geta ekki dulið þetta“ (55). En þótt það sé samkomulag með höfundi og persónum hans að tilfinningar skuli berja niður með karlmennsku, þá fer einatt svo að þær geta „ekki dulið þetta“. I ævisögunni er Theódór Friðriksson mjög við það heygarðshornið að segja sem fæst, en í skáldsögunum gefur hann sig á vald vímu tilfinninganna, brýtur ok hefðarinnar. En því miður: þegar hann hefur gert þetta stendur hann á hálum ís. í stað þess að njóta góðs af því frelsi sem uppmálun lífsháskans og ástríðnanna gæti boðið upp á, hafnar hann i nýjum þrældómi á galeiðu eld- húsrómansins, í klisjusmiðju tilfinningalífsins. Hann skortir alltof oft þá bók- 211
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.