Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 90
Tímarit Máls og menningar menntalegu reynslu og stílræna varúð sem hann þarf ef takast á að sneiða hjá hæpnum formúlum. Grímsi (í Grímu) er „umvafinn unaðslegri sælu“ þegar hann horfir á stúlkuna sína sofandi og „þetta var heilög stund, sem markaði svo djúpt spor í vitund hans, að hann gleymdi því aldrei meðan hann lifði“ (75). Þegar Dagbjartur (Mistur) hittir æskuunnustu sína aftur gerast þær náttúru- hamfarir að „innibyrgð þrá leitaði nú útrásar eins og beljandi foss, sem sprengir af sér allar stíflur" (133). Hinn rómantíski hátíðleiki verður ekki síst yfirþyrm- andi þegar á góma ber eitt eftirlætisþema Theódórs: ástin sem brást, elskendur sem fórust á mis (tilbrigði við Karitasarstefið úr íverum). í Útlögum rekst Rafn skipstjóri á æskuvinkonu sína, Ragnheiði, sem hafði á sínum tíma vísað honum á bug, af því hún taldi þau tvö ekki nógu þroskuð til ásta. Hann vill liðsinna henni af örlæti sínu (hefnd göfugmennskunna;) og gefur henni, fátækri og óléttri að f)órða barni, fimmtíu krónur: „Mér finnst nú — eins og hjarta mínu sé að blæða út, svaraði Ragnheiður. Hún hallaði sér upp að brjósti hans og grét eins og barn. Eg finn það nú —við ylinn, sem leggur frá brjósti þínu, Ragnheiður, að ég fer mikils á mis í lífinu —skógarmaður og útlagi eins og Grettir og Gísli“ (106) svarar Rafn þá. Fornkapparnir eru ekki lengur fyrirmynd um hegðun heldur tákn einsemdar og ástleysis. Þegar svo skclfmgar, örvæntingu eða heift ber á góma, er enn frekar en i kærleikamálum gripið til þess að segja fleira en færra. Þá verða höfundurinn og málpípur hans beinlínis mælsk. Fyrirmyndin er þá meðal annars Biblían og allir þeir prédikarar sem hafa reynt að fara í föt spámannanna: „Jarðvegurinn er holgrafinn undir fótum yðar. Undir iljum yðar brennur logandi glóð“ (Líf og blóð, 61) segir fátæklingurinn sem er að segja kaupmanni sínum til syndanna. Þegar söguhetjan í Lokadegi og Mistri, Dagbjartur, hefur kynnt sér lífið í höfuðstaðnum í mánaðartíma setur hann svofelldan dóm yfir borginni í vasabók sína: „Reykjavík! Reykjavik! I þér lifa og hrærast ríkir menn og frúr, sem eyða æfl sinni í vellystingum praktuglega —andlaus kjötstykki! Þú, sem skapar hyldýpi eymdar, spillingar og volæðis! Þú spillingarinnar stóri staður, sem eitrar út frá þér á alla vegu og berð syndarinnar djúplæga fræ út í þjóðarlíkamann eins og bakteríur! Þú grætir fleiri en þú græðir. Og sjá! nú er stundin komin, að augu þín taki að opnast og að þú bætir fyrir brot þín ... 212
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.