Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 99

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Page 99
,,Von um virðingu fyrir sjálfum mer“ við kapp og dugnað vekur nú fyrst og fremst viðbjóð. Höfundur fer ekki í feluleik með pláss og þannig lýsir hann Siglufirði: „Hann horfði yfir þessa eyri, þar sem allir voru trylltir í vinnu, þetta drullu- og forarstykki, þar sem öllu ægði saman, síldinni, þorskinum og grútnum, og svo þessi leiðinlega gufa, sem eitraði loftið út frá þessum stóru bræðsluofnum. Ofan á þessum óþverra flutu sálarskörnin eins og lýsi ofan á tunnu, og þarna hafði húsunum verið slett niður í tryllingi hingað og þangað eins og einhver reiður djöfull hefði hrækt þeim út úr sér í bláköldu skeytingarleysi. Það brutust um í honum öfl eins og í jörðinni, sem langar til að gjósa“ (Mistur, 57). Þetta er allt annar tónn en i ævisögunni, þar er höfundur forvitinn gestur á Siglufirði, þótt honum standi stuggur af „sollinum“ eins og sveitamanni var eðlilegt. Hann er óviss um það hvað halda skal: „Hjá mér vöknuðu alls konar spurningar um tilgang og gildi þess sem fyrir augun bar, og voru þau mörg ævintýrin sem ég vissi um í þessari iðandi mannkös" (7 verum, 366). Ævisagan á nokkrar stórkarlalegar lýsingar á vertíðarati á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum, en það er allt mjög hóflegt í samanburði við lýsingu Misturs á páskahrotu í Eyjum: „Þessi skelfilegi afli ætlaði alveg að gera út af við menn bæði á sjó og l.indi, og alltaf voru aðgerðarmenn að fatlast frá. Það hafði liðið yfir menn i flæðarmálinu undir pöllunum þar sem þeir gengu örna sinna og margir fengu blóðnasir og höfuðþyngsli af þreytu og vökum. Óeðlileg æsing fór í taugarnar á sumum ungum og hraustum mönnum. Þeir æddu áfram í nokkurs konar hamförum og tryllingi og rugluðu óráðskennda drauma við kvenfólk . ..“ (150). En nú er að athuga það, að það er Dagbjartur söguhetja sem fellir þá hörðu dóma sem hér birtast um mannlíf í bjargræðisplássum landsins. Og Dagbjartur er eins konar óskmynd Theódórs af sjálfum sér. Sagan hefst á kappræðu milli tveggja félaga, tveggja viðhorfa. Borgþór og Dagbjartur koma til Eyja saman, dugnaðarforkar báðir tveir. Borgþór hrífst fyrirvaralaust af því tryllta lífi sem lifað er í verinu með ofsavinnu, fylliríi, slagsmálum og kvennafari, og byrjar strax að kynna sér alla möguleika á að græða á ástandinu. Dagbjartur er hins vegar lítið hrifinn, honum blöskrar mjög ástandið og þá ekki síst menningarleysið. Aðventistar hræða fólkið, bókasafnið grotnar niður, kvenfélagið heldur uppi sjónleikjum stöku sinnum en það eru „örgustu skrípaleikir og hugsjónalaust rusl“ og æskulýðsfélögin eru vita máttlaus, samkomur þeirra „ekkert annað en dans og fótaspark, eintómt hopp og hí út i loftið" (Lokadagur, 75). Dagbjartur vill „bæta hugsunarháttinn í 221
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.