Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Síða 111

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1980, Síða 111
Mjög gamall maður Faðir Gonzaga mætti léttúð fjöldans með heimatilbúnum formúlum á meðan hann beið eftir endanlegum dómi um eðli fangans. En pósturinn frá Róm hafði tapað flýtisskyninu. Tíminn leið við bollaleggingar um það hvort engillinn hefði nafla, hvort mállýska hans ætti eitthvað skylt við arameísku, hvort hann kæmist mörgum sinnum fyrir á títuprjónsoddi, eða hvort hann væri ekki bara Norðmaður með vængi. Þessi smásálarlegu skrif hefðu eflaust haldið áfram að berast á milli allt til enda veraldar, ef ekki hefði orðið atburður sem kom einsog himnasending og batt enda á raunir sóknarprestsins. Þannig vildi til að einmitt um þetta leyti, og ásamt með mörgum öðrum skemmtiatriðum flökkuhópa frá Karibahafi, kom til þorpsins dapurlegt fyrirbæri: kona sem hafði breyst í kónguló fyrir að óhlýðnast foreldrum sínum. Það var ekki nóg með að ódýrara væri að sjá hana en engilinn, heldur fcngu áhorfendur að leggja fyrir hana allskyns spurn- ingar um fáránlegt ástand hennar og skoða hana í krók og kring, þannig að enginn gat verið í vafa um sannleiksgildi þessa hryllings. Þetta var óhugnanleg risakónguló á stærð við sauðkind, með dapurlegt ung- meyjarandlit. Það sem kom áhorfendum til að vikna var þó ekki skrípa- legt útlit hennar, heldur sú einlæga hryggð sem einkenndi frásögn hennar afeigin ógæfu: varla nema barn að aldri hafði hún flúið úr foreldrahúsum til að komast á dansleik, og þegar hún var á heimleið um skóginn eftir að hafa dansað alla nóttina í leyfisleysi skipti ógnvekjandi þruma himninum í tvennt og út úr glufunni kom brennisteinselding, sem breytti stúlkunni i kónguló. Það eina sem hún lagði sér til munns voru litlar kjötbollur, sem góðviljaðar sálir áttu það til að stinga upp í hana. Annað eins sjónarspil, þrungið svo mannlegum sannleika og þvilíkri hræðilegri við- vörun, hlaut óhjákvæmilega að reynast yfirsterkara hrokafullum engli, sem ekki var meira en svo að virti dauðlega menn viðlits. Þar við bættist að þau fáu kraftaverk sem englinum voru kennd báru vitni um ákveðnar geðveilur, einsog t.d. blindi maðurinn sem fékk ekki sjónina aftur heldur þrjár nýjar tennur, og lamaði maðurinn sem fékk ekki máttinn heldur var næstum búinn að vinna í happdrætti, og holdsveiki maðurinn sem varð fyrir því að baldursbrár fóru að vaxa í sárum hans. Þessi huggunarkrafta- verk, sem einna helst minntu á skammarstrik, höfðu þegar grafið undan 233
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.