Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Qupperneq 128

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1983, Qupperneq 128
Tímarit Máls og menningar við landa sína um langt árabil. Allt slíkt var auðvelt að laga, og þó er mér tjáð að mér hafi yfirsézt sitthvað; má ekki minna vera en ég noti þetta tækifæri til að biðjast forláts á því. Smávægileg þekkingaratriði og ýmiskonar misminni höfundar gerði ég auk þessa athuga- semdir við, sem ég skrifaði honum um í alllöngu bréfi, því að sjálfsögðu leyfði ég mér ekki að krota í ritverk annars manns án samráðs við hann. Tók hann flest til greina, en þó ekki allt, m.a. sökum þess að hann kvaðst ekki vilja tefja útgáfuna eða taldi sig eiga óhægt um vik að endur- semja heila kafla hennar í snarheitum; lét duga að lýsa því yfir í eftirmála að minni sitt væri svikult. Má þó segja, að einmitt slíkum höfundi sé öðrum nauð- synlegra að afla sér heimilda áður en ritun endurminninga er hafin, en það hafði hann alls ekki gert, heldur „valið að láta svikult minni ráða“. Nú hlýt ég að viðurkenna, að ég er ekki nema að takmörkuðu leyti dómbær um „sagnfræðina“ á meginhluta þess tímabils sem bókin spannar, þar sem ég kynntist ekki Hannesi fyrr en vorið 1940. Æskusaga hans er því áður ókunn mér að mestu, en ýmsum nákomnum hefur þótt hann fara harla frjálslega með staðreyndir í því sem hann skrifar um æsku sína, bæði persónur og atburði. Eg læt því ósagt um hversu sannferðug frá- sögn hans er þar. Hitt get ég ekki stillt mig um að játa, að mér finnst öll sú saga mjög hugþekk aflestrar, endaþótt dapur- leg sé öðrum þræði og öryggisleysi og hálfgert flækingslíf eins og viðlag við bernskuminningar hans; Hannesi tekst nefnilega að gefa öllu þessu þann senni- leikablæ sem góðum skáldsagnahöfund- um tekst iðulega — og í því liggur að sjálfsögðu hættan, ef „sagnfræðin" skyldi vera eitthvað broguð. Ein er sú persónulýsing þar, sem ég hika ekki við að telja öðrum fremur heillandi í bókinni, og á ég þar að sjálf- sögðu við umfjöllun höfundarins á föð- ur sínum, Sigfúsi Sveinbjarnarsyni fast- eignasala. Ég las einhversstaðar á prenti þau ummæli að Hannes væri beint eða óbeint að gera lítið úr honum og auðmýkja hann, en það finnst mér af og frá. Að vísu segir hann frá gömlum manni komnum að fótum fram og í hinztu örvæntingarfullu átökum við valt veraldargengi, hrörnun og dauða. En sú heildarmynd sem ég fæ af þessum manni er á þann veg, að hér hafi verið hæfi- leikamaður og allmikið í hann spunnið, en líka að sama skapi draumóramaður, í eðli sínu listamaður á gersamlega rangri hillu. Hann trúði á ævintýrið, rétt eins og eðlilegt var á hans tíma, kannski á öllum tímum. Menn gleymi því ekki, að tímar Sigfúsar voru ár Ameríkuferða, ungmennafélaga, hverskonar þjóðfélags- legs uppgangs og tækifæra, en jafnframt ár heimsstyrjaldar og skyndilegs verð- mætahruns; þarf að nefna fleira? — Vort heimslíf er tafl fyrir glöggeygan gest, þar sem gæfan er ráðin ef leikurinn sést, orti einn samtíðarmanna hans og gat sjálfur trútt um talað. Einmitt. En það voru vissulega fleiri en einfeldningar sem yfir- sást stundum gæfulegasti leikurinn . . . An efa hefur Sigfús alla tíð fundið nokkuð til sjálfs sín, máski einum um of; þar til kom líka aldarandinn. Hann var á fyrrihluta ævinnar í þeirri stétt iðnaðarmanna sem þótti hvað nátengd- ust menntamönnum og átti innan sinna vébanda frumherja svo á sviðum lista sem félagsmála: hann var prentari. Svo var maðurinn ekki með öllu laus við það að vera vel ættaður að þeirrar tíðar mati: afi hans var séra Hannes Jónsson pró- fastur í Glaumbæ, sá sem ort var um 118
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.