Tímarit Máls og menningar - 01.12.1984, Side 124
Tímarit Máls og menningar
Tengslin við nasisma
Athyglisverðasta deiluefni okkar PH
varðar notkun mína á hugtökunum lífs-
heimspeki, nasísk hugmyndafræði,
þjóðernisstefna og snillingadýrkun.
Hann segir að ég telji að sérhver aðdáun
á náttúrunni og sveitinni sé smituð fas-
isma. Það er rangt. Eg held engu slíku
fram í bók minni, enda er það ekki
skoðun mín eins og Hallberg er reyndar
fullkunnugt eftir hin löngu samtöl okkar
síðastliðið vor.
I ritgerð minni ræði ég það sem ég
kalla hamsúnisma, sem kom glöggt fram
hjá Sigurði Nordal og fleirum á þessum
tíma (sbr. grein mín um SN í TM&m
1984:1). Heimspekileg mynd þessarar
stefnu, lífsheimspeki, birtist hjá þeim Ni-
etzsche, Henri Bergson og Wilhelm
Dilthey. Þeir hafa vissa andúð á
skynsemishyggju eins og fram kemur í
skrifum Bergsons um innsæi og Dilt-
heys um innlifun og um hugtakið að
skilja. PH lætur að því liggja að þetta
komi íslensku höfundunum ekkert við,
en það er rangt. Guðmundur Finnboga-
son sótti fyrirlestra hjá Bergson og vitn-
aði mjög til hans í doktorsritgerð sinni.
Viðhorf sem greinilega minna á Dilthey
koma fram í bókmenntaskrifum Sigurð-
ar Nordal. Halldór Laxness og Einar
Ólafur Sveinsson þaullásu Also sprach
Zarathustra eftir Nietzsche, og Nietzs-
che er getið í Rauða kverinu, Heiman eg
fór og Vefaranum mikla frá Kasmír. Það
að PH finnur orðið Iífsheimspeki ekki í
íslenskum orðabókum er þessu máli
óviðkomandi með öllu.
I ritgerð minni legg ég drög að sam-
anburði á kenningum Sigurðar Nordal
og Friedrichs Nietzsche. Þótt hann sé
gerður af nokkrum vanefnum af minni
hálfu, þá skýtur PH mér hressilega ref
fyrir rass að því leyti. Hallberg álítur
nefnilega að það að Nordal var félags-
lyndur og að hann varð sendiherra
tuttugu árum eftir að hann skrifaði um-
ræddar greinar, sanni að hliðstæður í
greinum hans og Also sprach Zara-
thustra séu óhugsandi. Mér þætti gaman
að vita hvaða önnur heimspekirit hindra
menn skv. PH í að gegn sendiherrastarfi.
Samsvarandi fyrir ýmsar aðrar starfs-
greinar væri jafnvel enn fróðlegra.
I ritgerð minni kemst ég svo að orði
að ýmislegt í skrifum HKL og Sigurðar
Nordal minni á hugmyndafræði nasista.
Eg geri ráð fyrir að PH viðurkenni eins
og aðrir að róttæk þjóðernisstefna og
sveitalífsdýrkun var áberandi hjá helstu
talsmönnum nasismans, enda er það
staðreynd. Samt telur PH það fjarstæðu
að róttæk þjóðernisstefna HKL og SN
og sveitalífsdýrkun þess síðarnefnda
minni á nasismann. Hvers vegna er hið
líka með þessum skoðunum og nasism-
anum skyndilega horfið þegar HKL og
SN eiga í hlut? Hjá Sigurði Nordal,
Guðmundi Finnbogasyni og fleiri
íhaldsmönnum komu á sínum tíma fram
fjölmargar einstakar skoðanir, sem þeir
voru sammála nasistum um. Samt voru
þeir auðvitað ekki nasistar. En hvað
bannar manni að segja að viðhorf þeirra
minni á viðhorf nasista fáum árum
síðar? Er einhver bannhelgi á umræðu
um hugmyndagrundvöll nasismans?
Hér skiptir meginmáli að ég hef rætt
um að ein hugmynd minni á aðra. I því
efni hef ég hvergi farið með rangt mál.
Eg viðurkenni að það er ef til vill lang-
sótt að rekja spor hamsúnisma og nas-
ískrar hugmyndafræði í Atómstöðinni
(og er ég þó ekki fyrstur manna til þess).
Það er þó alls engin firra meðan lögð er
áhersla á að aðeins er verið að ræða um
líkingu hugmynda á yfirborðinu og án
tillits til sögulegra atburða. Hugmyndir
594